Verkefni


Héðan er allt nokkuð gott að frétta. Hef verið að eyða síðustu dögum í að draga þorski blóð. Það er ekkert sældarlíf að vera þorskur í okkar höndum og þessi grey fá að finna fyrir því. Byrjuðum á því að geyma þorska í kerjum í eina viku og slátra þeim svo öllum, drógum þeim blóð og fleygðum svo sem hverju öðru sorpi í tunnu. Síðan höfum við tekið félaga þeirra einn af öðrum, grætt í þá slöngur sem eru til þess fallnar að draga blóð. Daglega eru svo tekin blóðsýni og ýmsir þættir mældir í eina viku. Ef þessi vika hefur ekki farið með þá yfir móðuna miklum (gerist stundum) þá hefst önnur vika sem hefst með þvingaðri mötun. Við troðum plastslöngu upp í þá, setjum í hana töflur með phytosteróli og ýtum þeim svo niður í maga með stöng einni mikilli. Nú eru blóðsýni tekin á 3,6,12 tíma fresti fyrsta daginn og svo á 24 tíma fresti út næstu viku. Eftir þetta finnst mér líklegt að við lemjum þá í hausinn og hendum þeim til bræðra sinna.


Ég setti inn nokkrar myndir fyrir þá sem hafa áhuga á fiskeldi, þorksi eða bara þeim sem vilja sjá mig í appelsínugulum jakka og hvítum stígvélum. Myndirnar eru vondar enda ekki leyfilegt að taka með flassi þar sem það myndi eyðileggja niðurstöðurnar eins og flestir ættu að vita.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap