Undir eftirliti
Þegar ég kom heim úr fyrirlestri í hádeginu þá var ljóshærða stasi- beljan að snudda í ganginum okkar. Ekki veit ég hvort hún var að koma fyrir fleiri njósnatækjum (sjá mynd) eins og eru í herberginu mínu en hún var allavega að gramsa í ruslaskápnum, skoða sturtuna og rýna í kamarinn. Svona rétta að tékka hvort við hefðum það ekki gott, fallegt af henni blessaðri. Fyllti síðan út eyðublað, punktaði eitthvað hjá sér íbyggin á svip og gaf svo Stóradóm. Enginn broskall leit dagsins ljós og þetta fer sjálfsagt fyrir nefnd hjá þessum miðstýrða stúdentasamskipnaði sem hér ræður ríkjum. Endar í möppu og verður sjálfsagt til að takmarka möguleika mína á meira námi hérna í Noregi í framtíðinni.
Datt því í hug að sýna nokkrar myndir frá Pentagon sem eru garðarnir hérna sem ég bý á. Þær er að finna í nýju albúmi hér til hliðar. Myndirnar hér að ofan eru hinsvegar sem fyrr segir af njósnatækinu í herberginu, af íbúðargangi hér í kjallaranum og svo af efri hæðinni á mínum kampi.
Ummæli