Pirr og kvart

Þar sem ég hef verið svo jákvæður upp á síðkastið þá langar mig til að kvarta og grenja aðeins. Ég veit að fólk hefur hvort sem er svo ofboðslega gaman að því að heyra harmsögur og nöldur. Við skulum hafa þetta stutt og laggott samt.

1.Mötuneytið mitt fer versnandi dag frá degi. Það lýsir sér í því að magn kartaflna og grænmetis eykst hratt á kostnað kjöts og fisks. Með tárin í augunum hef ég þurft að þola þessar breytingar og nenni ekki að gera mig að fífli með því að fara að rífa mig á skandinavískunni minni. Það myndi hvort sem er ekki breyta neinu. Í gær fékk ég matardisk sem var sjálfsagt 2,5 kg á þyngd. Innan um forsoðið grænmeti og kartöflumús fann ég svo 3/4 hluta af steiktri pulsu.

2.Ég fór í lágvöruverslun í dag til að versla helstu nauðsynjar til að tóra fram að Lundarferðinni á föstudaginn.

3 undanrennur
kavíar
2 bananar
6 egg
4 eppli
pínulítil dós af kotasælu (hún sést varla)
Einn bakki af "hamborgarahryggs"- áleggi (skinka).

1726 kr/íslenskar!

Eftir því sem ég er lengur í þessu blessaða landi þá finnst mér sífellt erfiðara að trúa því að Ísland sé dýrara en Noregur. Maður gæti haldið endalaust áfram að telja upp þar sem þessir nískupúkar plokka peninga af manni. Maður er hvergi óhultur. Borgar 1100kr fyrir að borga gíróseðil í banka eða leysa út ávísun. 800 kr fyrir 15 mínútna lestarferð, 113 kr fyrir að fara á klósettið á lestarstöðinni, 1100 kr fyrir að skutlast til Svíþjóðar og til baka í vegtolla þrátt fyrir að borga okurverð fyrir bensín. Hvað er þetta pakk eiginlega með háar tekjur? Guð blessi Ísland, Jóhannes svikara í Bónus og íslensku moldarslóðana sem við þurfum að aka eftir.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já nú þekki ég þig. Var orðinn hundleiður á að lesa um einhverjar golf-skemmtiferðir. Mun skemmtilegra að lesa um eymd og volæði.
Bjarni sagði…
Datt það í hug;)
Halldór sagði…
heyr heyr, golfhommar.
Arnþór sagði…
Mikið er ég glaður að heyra að það sé einhver sammála mér, Noregur er dýrari en Ísland.
Hvernig er það annars, áttu ekki afmæli í dag? Til hamingju með daginn.
Bjarni sagði…
Jú takk fyrir það, ég á víst afmæli. Verðlagið hér er eins og þjóðarstolt þeirra, uppblásið og tilefnislaust.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap