Póetík

Þeir sem þekkja mig vita flestir að ég hef óbilandi áhuga á ljóðlist. Fáir dagar enda vel sem ekki byrja með lestri góðs atómljóðs. Að velta burt öllum þvingunum stuðla, höfuðstafa og rímnaoks gerir ljóðin frjáls og þau ná flugi. Rísa í hæstu hæðir og snerta sálina þar sem ekkert hefur áður snert hana. Bestu atómljóðin eru yfirleitt ort af framhaldskólastelpum í ástarsorg því þau eru svo einlæg. Verstur andskotinn hvað er lítið aðgengi að slíkum kveðskap. Þar sem dagurinn hjá mér var fagur og góður ákvað ég að setja saman stutt ljóð eftir mig. Þetta er sko list.

Veröldin flæðir inn um gluggann minn
Óviðráðanlegt frelsi til athAfna - fjörður
Hvert leiðir það?
Þungir steðjar þvingaðra hugsana
Brjóta í tætlur vonir sorgmæddra húsmæðra..... en ég er frjáls

1 fyrir peninginn
2 fyrir sýninguna
3 viðbúin fyrir aftökuna

Brotnir ljósastaurar, þungar sálir
Vesturbærinn þýtur framhjá á ógnarhraða
Hvar er stoppistöðin?
Frost
Blóð
Mold

Babú babú, blómin dauð
Eitt væl og ég svíf aftur inn í veröldina, þaðan sem ég kom
Nóasíríusblautir votlendisdraumar
Vængstýfður stelkur í hástökki sálarinnar
Hverfur inn í sortann, lamaður af sorg
Nær snertilendingu við þak Seðlabankans
Blóðdropi
Síðan þögn
Ég er kominn heim................

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þá dettur mér í hug að henda hér inn ljóðinu sem ég hef verið að semja upp á síðkastið við bjarmann af friðrarsúlunni:



ORÐ

ræða sextíuogáttakynslóðarinnar:

bla bla bla
bítlarnir
bla bla bla
Bjarni sagði…
Ahhhh, gott innlegg, fallegt ljóð. Friður sé með þér Jóhann minn
Nafnlaus sagði…
Ódauðlegt, bravó bravó bravó, ég grét úr mér augun þegar ég las þetta. Þú gætir alveg verið unglingsstelpa í ástarsorg...

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap