Nyheter



Jæja góða kvöldið. Við félagar mættum hér til Ásverjabæjar á þriðjudaginn eftir vel heppnaða ferð til Svíþjóðar. Maður er aðeins búinn að vera að vinna hér við að myrða einhverja þorsk fávita síðan en við náum nú sennilega að spila smá meira golf á morgun eða laugardag. Síðan er bara stanslaust fjör í skólanum fram að jólafríi. Skrepp nú samt til Lundar 16.nov og eyði þar afmælishelginni. Set inn hér 2 myndir af okkur félögum. Gunni á annars lítið gott skilið. Hann kom hér, smitaði mig af flensu og er búinn að rústa mig í golfi. En meira seinna........

Ummæli

Stefán Pétur sagði…
Eitthvað kannaðist ég nú við velli þarna á myndum. Langar nú alveg að setja rekilinn í vasann og skunda til Noregs í aðra gólfferð.
Hittuði meistara Kjell ?
Bjarni sagði…
He he, nei við sáum hann ekki en fengum félaga sem var ekki síður svalur. Gamall kall sem var alger snillingur, með eldgamallt sett og alveg þrusu góður. Þegar við rákumst svo nokkrum sinnum á gömul hjón sem spiluðu á eftir okkur þá voru þau alltaf að leggja fyrir okkur gátur um einhverjar melónur. Bara gaman
Nafnlaus sagði…
Melónur. Hljómar eins og hress hjón þar sem melónur er sænsk slángur fyrir konubrjóst. Hún var kannski að spyrja ykkur álits.
Bjarni sagði…
Ég ætla að vona að hún hafi ekki verið að tala um donnurnar á sjálfri sér því gátan hljóðar svona: Þú ert með melónu sem vegur 2kg og er 99% vatn. Þú gleymir henni í sólinni og þegar þú vitjar hennar er hún orðin 98% vatn. Hvað vegur melónan. Annars getur gamla fólkið á Kanarí svo sem gleymt sér í sólinni...
Nafnlaus sagði…
Hún var að klæmast við þig á sænska vísu.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap