Blogg
Það kemur fyrir að maður rekist á góðar bloggsíður og nú hef ég fundið eina sem stendur fyrir sínu. Þetta er bloggsíða Sverris Stormskers sem ekki hefur látið mikið fyrir sér fara síðustu ár og maður var eiginlega búinn að gleyma þessum brjálæðingi. Ég ætla að grípa niður í færslu sem hann setti inn um Edduverðlaunin og íslenska leikara.
"Mér þætti gaman að sjá íslenskan leikara standa hundinum Lassie og hrossinu Trigger snúning í hárfínum svipbrigðum og sálrænu næmi. Segir það ekki allt um innlenda leiklist að frægasti íslenski leikarinn skuli vera hvalur, - einhver Keikó eða Kakó eða Sækó eða hvað hann nú hét þessi leiðinda ofverndaði fjölfatlaði háhyrningur sem hafði það að aðal atvinnu að ríða hjólbörðum í Vestmannaeyjum. Dó svo úr þunglyndi við Noregsstrendur þegar sprakk á kærustunni hans og endaði sem dósamatur í Bónus."
Sverrir vill líka meina að flestir íslenskir leikarar séu of duglegir og ofleiki því gjarnan. Þegar kemur að bíómyndum þá held ég að þetta sé rétt hjá honum. Man varla eftir að hafa séð vel leikna íslenska bíómynd sjálfur. Við skulum láta Sverri eiga lokaorði:
"Bestir eru Íslendingar í að leika þroskahefta fáráðlinga, á sama hátt og dvergur er góður í því að vera lítill. "

Ummæli