Mættur


Jæja þá er maður kominn aftur til Ås og farinn að þurfa að huga að ýmsum hlutum tengdum námi. Vaknaði kl. 06 í gærmorgun í Lundi, drakk kaffi með pabba og keyrði svo uppúr og var kominn passlega í tíma í gær. Sat alveg ágætis tíma í tölfræði hjá manni sem kennir tölfræði með leikrænum tilburðum. Hann æpir eins og hann eigi lífið að leysa og sveiflar höndunum þegar hann tekur tignarleg stökk fyrir framan krítatöfluna. Hann er með skosk- norkan framburð sem passar ágætlega við þennan gjörning. Ég vildi óska þess að ég gæti fest þetta á filmu til að leyfa fleirum að njóta þess með mér en finnst ekki líklegt að af því verði.

Af veiðiferð okkar feðga er það að frétta í stuttu máli að við höfðum það gott þó við höfum ekki haft heppnina með okkur í þetta skiptið. Sáum samt svolítið af dýrum og bárum út maís fyrir villisvín sem hafa verið dugleg við að tæta upp akrana fyrir bændunum og skemma kornuppskeru. Ég keypti mér einhverjar flautur til að kalla á refi áður en við lögðum af stað og er sennilega búinn að fæla alla refi af austurströnd Svíþjóðar í þessum töluðu orðum. Þar sem við veiddum ekki neitt tók ég engar myndir nema af vindmyllu sem bændurnir hafa látið reisa á sínu landi, sjálfsagt græða þeir vel á því. Þetta er ábyggilega fínasti veiðiturn enda sennilega 60 metrar á hæð. Ég verð nú að setja inn mynd af þessu apparati fyrir félaga mína úr orkugeiranum.

Þegar ég var að stjákla hérna inni í eldhúsi í morgun kom einhver kona að fylgjast með hvort við þrifum almennilega hjá okkur. Hún gekk um með eitthvað blað og gaf broskalla. Æi ég veit það ekki. Læt þetta gott heita í bili og bið að heilsa öllum heima.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sæll Bjarni, ég er viss um að þú mundir vilja vera með okkur í fótboltanum sem við erum að fara að spila í vetur. Þar verða óteljandi margar stórstjörnur, s.s Baldvin Jón, Kristinn Agnar, Þolli, auðvitað ég, Stevie Peeee, Halldór nokkur frá Helluvaði og litli Halldór einnig. Eins og þú lest þá er þetta mikill stjörnubolti og fagurfræði knattspyrnunnar verður í hávegum höfð.

Annars erum við Gazzi búnir að finna okkur flug til Oslo og þaðan til Stavanger fyrir rétt rúmar 20 þús krónur 20 okt, þannig að þetta er líklegt.
Bjarni sagði…
Djöfull líst mér vel á þetta fótboltalið maður. Það eina sem vantar er ég sjálfur, snillingurinn eini og sanni. Maður fær nú kannski að mæta á eina æfingu ef maður er staddur í bænum?

Ódýrt og fínt flugfar sýnist mér. Annars hefðum við sennilega getað tekið roadtrip. Svo er Þórður að spá í að koma en veit ekki hvenær.
Nafnlaus sagði…
Talandi um stórstjörnur, ég er líka í þessum bolta!!!! að ótöldum Einari Burstafellsperlu Bragasyni!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap