Baldur og Bryne

Eftir komment frá Hinrik fór ég aðeins að skoða þetta með félagaskipti Baldurs til Bryne en þetta hafði algerlega farið fram hjá mér. Vonandi fer drengurinn að spila fljótlega en ef ég skil þessa heimasíðu Bryne rétt þá var hann í banni í fyrsta leik vegna uppsafnaðra spjalda að heiman. Einnig sé ég á heimasíðunni þeirra að Bryne á eftir 5 heimaleiki og klára tímabilið í nóvember. Því fór ég að kíkja á hvernig væri að komast þangað og það lítur út fyrir að skemmtilegasta leiðin frá Ási sé að taka göngin undir Oslófjörð, keyra svo upp til fjalla og fara í gegnum Telemark. Þetta hljóta að vera góðir vegir því vegalengdin er 419 km. og keyrslan á að taka rúmlega 9 klst. Nú er bara að sjá hvort það var einhver alvara í þessu hjá Hinrik og hvort maður hafi tíma í þetta. Hljómar sem ágætis helgarferð samt.

Ég hafði ekki hugmynd um hvar þessi staður er en fyrir þá sem ekki vita þá liggur Bryne rétt utan við Stavanger. Upprunalega hét þessi bær Thime station og byggðist upp við járnbrautina sem liggur frá Stavanger til Egersund en nafninu var breytt í Bryne 1921. Bærinn byggðist upp í kringum landbúnað og fljótlega fóru þeir að smíða og selja plóga, sláttuvélar og aðrar græjur. Fyrsta skurðgrafa í Evrópu sem eingöngu notaði vökvadælur sem aflgjafa var smíðuð þarna af bræðrunum Kristian and Ingebret Søyland. Menntastofnanir sem ber að nefna eru framhaldskóli og skóli í mjólkurfræðum sem stofnaður var 1906. Af menningartengdu efni er hægt að skoða garð með skúlptúrum og einhverja myllu. Sem sagt það er ekkert þarna nema þetta blessaða fótboltalið. Þó má nefna að snilldarbandið Kaizers Orchestra er frá þessum bæ en ég tel líklegt að þeir séu fluttir einhvert annað.

Ég veit að allir hafa haft feykilega gaman af þessum pistli og fólk hefur nú áttað sig á að Bryne er falin fjársjóður í hjarta Noregs. Sannkallaður suðupottur menningar og íþrótta með Íslending í broddi fylkingar með íslenska fánann og takkaskó að vopni. Guð vors land og amen....

Mbk, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Søyland-bræðurnir klikka ekki, ég er til í að kíkja þangað ef að Kaizers eru með heimatónleika....
Bjarni sagði…
Ég væri til að fá að grafa skurð þarna ef Søyland-bræðurnir eru með heimaskurðargerð.
Nafnlaus sagði…
Já ég væri miklu frekar til í að prófa fyrstu skurðgröfu sem notuð var í Evrópu heldur en að sjá Baldur sprikla, hvortsemer rauðhærður og kiðfættur. Við gætum boðið öllum helstu áhugamönnum um skurðgröft og möl með. Halldór yrði þar fremstur í flokki meðal jafningja auðvitað.
Halldór sagði…
Ávallt fremstur meðal jafningja hvar sem er og hvenær sem er
Bjarni sagði…
Svo gætum við boðið frænda Gulla sem var svikinn með möl.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap