Íþróttadagurinn mikli

Feðgar í ræktinni.

Það var einn af þessum busy dögum hjá okkur í gær. Ég kom heim úr vinnunni í fyrra fallinu og fór að snúast eitthvað heima áður en ég keyrði Dagbjörtu Lóu í fimleika. Á meðan hún var í fimleikum þá hjólaði ég í 1,5 klst. áður en ég sótti hana aftur. Eftir það ákváð ég að drífa Brynleif með mér í ræktina en hann er búinn að vera hálf verklaus þar sem snjóbrettaæfingar hafa falli niður vegna gróðurhúsaáhrifa. Ég held hann hafi haft gaman að þessu en hann var nú samt hálf áttavilltur greyið og fannst þetta eitthvað erfitt. En þetta var allavega skemmtileg tilraun til að involvera fjölsyldumeðlimi í annasömum lífstíl sem snýst um hreyfingu.

Þegar þessu var lokið var kominn tími til að elda. Dagbjört Lóa vildi ommelettu og Brynleifur bjúgu. Allir fengu það sem þeir vildu og málið dautt. Ég var fljótur að sofna í gærkvöldi og er feginn að það er hvíldardagur í dag. Stefni á góðan mat í kvöld og svo popp yfir handboltaleiknum.



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap