Hænuskref
Clean eating - Mynd Brittish Heart Foundation |
Nú árið er liðið í aldanna spik og ég akkúrat 4 kílóum þyngri en ég var 2. janúar 2024. Ég hef rætt áður um það hérna á blogginu að ástæðurnar eru einkum þær að ég er i) hættur að taka nikótínpúða (hægari brennsla og meira át), ii) ég eignaðist bíl og svo iii) hef ég verið að lyfta og bætt á mig einhverju kjöti að ofan. Þetta er ekki allt spik.
Þegar maður kemur út úr svona miklu sukki eins og um jólin þá hellist yfirleitt yfir mann löngun til að taka sig á og bæta mataræðið. Hjá mér lýsir þetta sér í því að mér finnst ég þurfi að skola út skít og þrífa mig að innan. Ég skil vel fólk sem tekur föstur og safakúra því andlega hefur það mjög jákvæð áhrif á mann. Það er annað mál hvort það hafi einhver önnur jákvæð langtímaáhrif.
En eftir allt jólasukkið skaut þeirri hugmynd upp í kollinn á mér hvort ég ætti að prufa að taka einn mánuð alveg út í örgustu öfgar og taka 100% clean eating. Skrúfa niður kaffi, drekka meira vatn og borða ekki neitt sem er unnið. Bara hnetur og fræ, fisk, grænmeti, ávexti, egg osfv. Sleppa meira að segja mjólkurvörum.
Við Harpa ræddum þetta aðeins en ákváðum svo að taka heilbrigðari nálgun á þetta og laga bara aðeins til í mataræðinu. Reyna að troða inn meira af grænmeti og ávöxtum og borða ekki nammi og kökur næstu vikuna. Minna af feitum sósum, minna brauð. Þegar við förum að leyfa okkur aftur nammi þá að passa upp á að nammidagurinn verði ekki 72 klst. Leyfa okkur en ekki missa okkur.
Þó það hefði verið gaman að prufa að finna hvaða áhrif svona hreint mataræði hefði á mann, t.d. hvort húðin á manni yrði skárri, þá veit ég innst inni að þetta hefði ekki skilað neinu til lengri tíma. Það er mun gáfulegra að gera einhverjar minni breytingar og reyna að koma þeim í vana.
Í tengslum við þessar pælingar fór ég í gamlar bloggfærslur frá því á sama tíma í fyrra og sé að ég var ekki að vinna með nein markmið eða sérstakar pælingar um breyttan lífstíl. Reyndar endaði það svo að ég var ekki með nein markmið yfir höfuð. Ingvar ræddi alltaf um að setjast yfir þetta með mér en svo varð aldrei neitt úr því.
Og nú þar sem ég sit og er að pæla þetta átta ég mig á því að ég er ekkert nær því að setja á listann einhverja jákvæða breytingu fyrir árið í ár. Dettur einna helst í hug að prufa að þamba 2 vatnsglös alla morgna og taka inn D-vítamín. Ég bara kem því ekki inn í rútínu að taka þetta en kannski get ég breytt því ef ég hef glas inni á baði og vítamínbauk.
Ummæli