Jólastúss

Að lenda í Vestmanneyjum í síðustu viku.

Jólagjafakaup, vinna, skipulag, undirbúningur. Stress! Svona er þetta bara og ekkert meira um það að segja.

Vinnuferð til Vestmannaeyja í síðustu vikur. Allt gekk vel og við vorum ekki aflífaðir af lundaveiðimönnum þótt við séum óttalegir pappírspésar og aumingjar.

Æfingar ganga bara fínt og Ingvar er að reyna að keyra mig í gang. Mótorinn er í ágætis standi en allt fyrir ofan tempo er samt búið að vera mjög þungt. Fyrsta threshold æfingin mín í þar síðustu viku var 3x8 mín og ég varð að stytta síðari 2 settin niður í 4 mín. Á laugardaginn var ég aftur með sömu æfingu og kláraði 3x8mín þó það hafi ekki verið fallegt. Í dag var ég svo með 3x10 mín og negldi settin mun betur en 3x8 á laugardaginn. Ótrúlegt hvað maður er fljótur í gang þrátt fyrir að vera að lyfta líka með þessu.

En þó ég sé orðinn sæmilega brattur á ég nokkuð í land miðað við hvernig ég var í fyrravetur. Þá tók ég t.d. 3x15 mín threshold æfingu sem tók 3 klst. I'll get there... en já ég er bara góður en samt með smá bakverki sem ég fíla ekki. Samt er ég að hamast í ræktinni, taka maga og bak. Vonandi hverfur þetta.

Nú er búið að auglýsa Súlur vertical gravel hjólakeppni. Þrjár leiðir verða í boði og startað í Kjarnaskógi = 40 km, 104 km og 170 km. Vaðlaheiði og til baka (40km), Vaðlaheiði, Dalsmynni og til baka (104 km)og svo sama leið enVagla/Þórðarstaðarskógur til viðbótar (lengsta leiðin). Veit ekki alveg hvað ég geri en þetta verður 8. júní sem er ekkert löngu áður en Íslandsmótið verður og því kannski ekki sniðugt að taka 170 km?? Veit ekki, mun ræða það við Ingvar. Góða nótt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap