Grillaðar lappir
Þá var sól. |
TSS (Training Stress Score) er mælikvarði á erfiðleika æfinga. Ef þú tekur æfingu upp á 100 TSS myndi það samsvara því að þú værir á FTP (mesta afli sem þú getur haldið í klukkustund) í eina klukkustund. Þannig að ef ég er með FTP upp á 250 núna, þá væri það eins og ég væri á 250 vöttum í eina klst. Helsti gallinn við TSS er hinsvegar hversu lélega mynd það gefur af álaginu sem felst í að hjóla mjög lengi rólega. Hvað um það.
TSS er samt ágætt til að átta sig á erfiðleika æfinga og einnig til að horfa á hverja viku fyrir sig. Í fyrravetur þegar ég átti erfiðar vikur á hjólinu inni þá var ég að taka ca. +600 TSS en þegar ég tók stórar vikur úti í sumar þá var ég að fara í 900+. Ég er bara telja þetta upp til viðmiðunar því áður en ég byrjaði aftur í prógrammi hjá Ingvari var ég að dúlla mér í 200-300 TSS og Ingvar er kominn með mig upp í ca. 500 núna með tveimur lyftingaæfingum. Ég er því ennþá frekar rólegur.
Ummæli