bla bla bla...........

Búin að jólaskreyta.

Síðasta vika var alveg helluð og ég var gjörsamlega á yfirsnúningi við a ná að klára allt sem ég ætlaði mér að gera og koma öllum æfingum inn í planið. Ég átti 10 klst. á hjólinu + 2 lyftingaæfingar en á endanum fórnaði ég einni 1,5 klst. æfingu til að skreyta piparkökur með börnunum. Ég sé ekki eftir því.

Um helgina tók ég svo eldhúsið í nefið og bónaði meira að segja gólfið. Barnaherbergin voru líka þrifin og svo að lokum stofan. Þegar það var búið skreyttum við allt og fengum okkur svo kakó og piparkökur.

Þessi vika er eiginlega ekkert betri varðandi álag og núna er ég staddur í Reykjavík (miðvikudagur). Í gær vorum við með fund á Akureyri, í dag fundaði ég allan daginn í Reykjavík og á morgun sigli ég til Vestmannaeyja. Stefnan að komast heim á föstudag- taka 2 æfingar, fara svo sund og borða pizzu með Hörpu. Get ekki beðið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap