Orkuboltar
Orkuboltar! |
Ég byrjaði á þessum pistli í byrjun viku og gleymdi svo alltaf að henda honum í loftið. Ég opnaði þetta í morgun og tók út einhverja langloku sem ég var búinn að skrifa um hugsanlega neikvæð áhrif að moka í sig sykri á öllum æfingum. Látum það liggja milli hluta.
Ég hef heyrt því fleygt fram að Chat GPT sé búinn til til þess að búa til uppskriftir og æfingaáætlanir fyrir mann. Ég er sammála- það er alger snilld að nota þetta. Hér á eftir kemur hugmynd að hollum degi þar sem ég bað hann um að lágmarka sykur, einföld kolvetni og unnar vörur. Í lokin bað ég svo um uppskrift af "orkuboltum".
Eins snilldin við þetta er að maður getur hent inn æfingavikunni og þá fær maður matseðil sem passar að maður éti ekki of mikið þegar rólegir dagar eru en að maður sé vel "hlaðinn" á æfingum.
Morgunmatur
- Smoothie (mín uppskrift)
- Soðið egg eða handfylli af hnetum og/eða fræjum
Miðmorgunsnakk
- Ávextir og prótein: Eplasneiðar með möndlusmjöri eða grískri jógúrt með berjum og graskersfræjum
Hádegismatur
- Salatskál: Quinoa eða sætkartöflugrunnur, blandað grænfóður, grillað/steikt grænmeti (paprika, succhini t.d.), kjúklingabaunir með tahini sítrónu dressingu. Hægt að bæta við kjúklingi eða reyktum laxi fyrir auka prótein
Síðdegissnarl
- Orkuboltar: Heimagerðir boltar með döðlum, höfrum, hnetum og kakódufti
- Ávöxtur: Appelsína eða nokkrar döðlur
Kvöldmatur
- Balanseruð blanda: Grillaður lax, ristað rótargrænmeti og gufusoðið grænmeti (t.d. brokkolí eða grænar baunir). Borið fram með brúnum hrísgrjónum eða "villihrísgrjónum".
Kvöldsnakk (ef þörf er á)
- Kotasæla með dass af berjum og smá hnetum.
Þessi matsteðill inniheldur mikið prótein, hollar fitur og flókin kolvetni til að standa undir miklu æfingaálagi án þess að maður þurfi að éta mikið unnið korn eða sykur.
Fínt að enda svo þennan pistil með uppskrift af "orkuboltum" sem Chat GPT gaf mér sem ættu að vera betri kostur en að éta endalusat nammi og gel á hjólinu:
Ummæli