Útiæfingar
Æfingar ganga vel og Ingvar er kominn með mig í "race phase". Það þýðir að æfingamagn í klukkustundum fer niður og ákefðin fer upp. Löngu threshold æfingarnar eru nú að baki og styttri æfingar með hörðum sprettum hafa tekið við. Við erum að skerpa sverðið fyrir keppnistímabilið og það er að virka. Ég hef lengi verið meðvitaður um hvernig þetta er gert en það er öðruvísi að fara í gegnum þetta með þjálfara. Ekki bara öðruvísi, heldur allt annað líf. Ég treysti honum fyrir að setja upp besta planið, geri það sem hann segir og við erum ekkert að hræra í þessu.
Í gær fór ég út að taka klukkutíma endurance æfingu eftir að hafa verið í hvíld í 2 daga. Í stuttu máli sagt fannst mér ég geta mulið hjólið undan mér með löppunum. Núna vona ég bara að ég toppi ekki of snemma og nái að halda mér öflugum næstu 2 mánuðina.
Það eina sem ég er óánægður með er staðan á viktinni. Mér hefur ekkert gengið að létta mig og ég var með allt í skrúfunni eftir þessa Reykjavíkurferð um liðna helgi. Það besta sem ég get gert úr þessu er að koma mér í 65 kg fyrir fyrstu keppni og það er 2 kg. yfir markmiði. En ég má ekki láta þetta draga úr mér því að það eru fleiri keppnir eftir og um að gera að þoka sér í rétta átt fyrir þær.
Vikan á Training Peaks. |
Annars er æfingaplan vikunnar sjúklega spennandi og það er ekkert smá gaman að vera kominn á þennan stað í æfingunum að æfingarnar fari að vera svona fjölbreyttar og að maður geti tekið þær flestar úti. Í dag er 1,5 klst tempo æfing (2x10mín tempó) og svo ein helluð over/under á föstudaginn sem ég mun taka upp í Hlíðarfjalli. Veðurspáin er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir en það þýðir víst lítið að svekkja sig á því.
Ummæli