Ströggl
Í dag verður maður að passa sig þegar maður fer á Zerrano að biðja um venjulega, ekki stóran. En Brynleifur var alveg sáttur við þetta. |
Æfingar ganga super vel ég hef aldrei verið jafn öflugur á hjólinu en mér hefur ekkert gengið að létta mig. Eins og ég hef verið að þvaðra um hérna þá þarf ég að ná af mér 2-3 kg áður en ég fer að keppa. Mig langar ekkert að vera með eina tveggja lítra og aðra líters kókflöskur hangandi aukalega á mér þegar ég fer að hjóla upp Hólasand í fyrstu keppni ársins. Eða ef ég þarf að enda upp á skíðsvæði í Tindastóli í mótinu í júní. Minn styrkleiki er að ég er lítill og léttur og er sterkur í brekkum. Ég má ekki eyðileggja það með einhverjum aukakílóum.
Eftir að ég hætti að taka í vörina þá hef ég aðeins verið að ströggla með samband mitt við mat og sé núna svo skýrt og vel hvað það var mikið auðveldara að stramma sig af þegar maður henti bara poka í vörina. Og ofan á það bætist hvað brennslan hægðist niður við að missa þetta örvandi efni sem nikotín er. Ég borða í raun svipað mikið og ég gerði en það er of mikið.
Síðustu dagar hafa verið helvítis ströggl og varla vitað hvort mig langar meira í vörina eða að troða í mig nammi. Ég ætla samt ekki að gefa mig og veit að þetta er bara tímabundið bakslag. Í gærkvöldi var ákveðinn lágpunktur í þessu þegar ég tróð í mig 5 stórum sneiðum af pizzu og í svefnrofanum í nótt (ég svaf illa út af pizzunni), þá ákvað ég að nú yrði ég grjótharður fram að fyrsta móti. Ég er búinn að leggja þvílíkt inn í bankann í vetur, æfa eins og skepna og borga þjálfara. Ég ætla ekki að eyðileggja það með aumingjaskap.
Dagurinn í dag hefur verið mjög skynsamur í matarmálum enda er ég ótrúlega svangur. Ég er ekki alveg búinn að útfæra hvernig ég ætla að fara að þessu en í grunninn ætla ég að borða minna af unnum vörum, minnka skammtana aðeins og leyfa mér bara að borða nammi einu sinni í viku. Held að það sé skynsamlegra en að setja það alveg á bannlistinn.
Ummæli