Nikótín og púls
Hvíldarpúls síðustu 6 mánuði. Vill einhver giska hvenær ég hætti að nota nikótín? |
Nú er kominn nokkur tími síðan ég hætti að taka í vörina og því orðið aðeins meira að marka gögn um hjartslátt. Það er náttúrulega súrríealískt að skoða þetta og maður veltir fyrir sér hvað maður var að gera sér með þessu. Síðan ég hætti hef ég verið alveg einkennalaus og ekki fundið fyrir aukaslögum, ef frá er eru talin tvö síðustu kvöld. Skýringin á því er andlegt álag sem ég nenni ekki að fara út í hér.
Nú er búið að auglýsa vatnslitanámskeiðið sem ég á að kenna á og ég farinn að verða svolítið órólegur yfir þessu. En ef ég gef mér tíma til að skrifa niður nákvæmlega hvað ég ætla að fara yfir þá er ég viss um að þessir 3 klukkutímar verða fljótir að líða. Það er mikilvægast fyrir mér að ég nái að kenna fólki að verða sjálfbjarga og forðast algengustu mistökin sem eyðileggja of svo mikið. Ég er hræddur um að fólk komi á námskeiðið með þá von í brjósti að þau labbi út með fallegar myndir en ég held að það verði ekki raunhæft.
Æfing dagsins þar sem ég var í 3x20 mínútur í "steady state", þ.e. 92-98% af FTP. |
Annars er lífið hjá mér bara litað af æfingum og fátt annað sem kemst að. Síðasta vika var mjög sver (13,5 klst.) og þessi er nokkuð svipuð í álagi en "ekki nema" 11,5 klst. Steady state og threshold æfingarnar þessa vikuna eru lengri en í síðustu viku og nú var ég samtals klukkutíma á ca. 95% af FTP og á laugardaginn þá tek ég 3 klst. threshold æfingu þar sem ég verð samtals 54 mínútur á 100% FTP (3x18), það verður eitthvað.
Annars stíg ég á viktina alla morgna núna og það gengur nú ekki hratt að koma mér niður aftur. Ofát og minni brennsla eftir að ég hætti að taka í vörina er aðeins að hlaða á mig. Góðu fréttirnar eru að ég stend í stað en þær slæmu að ég þarf að ná af mér 2 kg. Það hlýtur að ganga á endanum. Kvöldmaturinn í kvöld var reyndar ekki til fyrirmyndar, pylsur í brauði. Þetta fór ekkert sérstaklega vel í mig og líkaminn átti skilið að fá eitthvað betra eftir þessa erfiðu æfingu.

d
Ummæli