Jæja
Ég og Brilli á Páskadag í sveitinni. |
Jæja þá er páskafríinu lokið og saltfiskurinn tekinn við aftur. Við börnin skelltum okkur upp í sveit um páskana og höfðum það alveg glimrandi fínt þrátt fyrir leiðinda veður. Þau voru reyndar aðeins lengur en ég upp frá þar sem ég skellti mér í bæinn til að taka æfingar og hitta Hörpu aðeins á milli vakta hjá henni.
Æfingar um páskana voru frekar hófstilltar í klukkutímum talið (8 klst.) en það voru samt alveg tvær threshold æfingar og ein steady state (rétt undir threshold) á fimm dögum. Það var langt síðan ég hafði tekið æfingar með ákefð og þegar ég blandaði þessu ofan í zone 2 æfingar sem ég tók frekar hart þá náði ég alveg að byggja upp þreytu.
Þar sem síðasta vika var frekar létt þá skellti Ingvar á mig 13,5 klst af æfingum þessa vikuna og þar af er ein 3 klst. threshold æfing þar sem ég er samtals í 45 mínútur á FTP-inu mínu með löngum endurance köflum inn á milli. Daginn eftir það tek ég svo 3 klst. endurance æfingu. Það mætti því segja mér að það verði mikilvægt hjá mér þessa vikuna að næra mig vel og hvíla.
Annars er allt á kafi í snjó á Akureyri núna og ekki nokkurt útlit fyrir að það hlýni í bráð. Árið 2022 skelltum við Harpa okkur fyrst út að hjóla 2. apríl og í fyrra var það 4. apríl. Ef ég ætti að giska núna þá spái ég því að það verði í fyrsta lagi um miðjan apríl. Ég ætla sannarlega að vona að það verði ekki lengra þangað til því það er orðið töluvert krefjandi að gíra sig upp í að sitja á hjólinu inni tímunum saman, hlusta á podköst og sama play-listann aftur og aftur.
Ég hef stundum reynt að horfa á einhverja þætti en ég dett alltaf út. Ég reyni að hugga mig við að þetta hljóti að vera góð núvitundaræfing og að þetta herði mann upp. Að pína sig 8-14 klst. á viku og horfa út í loftið á meðan er ekkert eðlilegur andskoti.
Ummæli