Innipúkinn
Lífið verður ekki betra en þetta. |
Ég var að vorkenna mér í gær að "þurfa" að taka æfingu. Mig langaði ekki til að byrja og var viss um að þetta yrði þungt og erfitt. Síðan minnti ég mig á að það eru ekki allir svo heppnir að geta hreyft sig. Ég er kominn í ruglað gott form og það er ógeðslega gaman. En það kostar líka aga, vinnu og tíma. Tíminn er mesta fórnin og ég verð að viðurkenna að ég hef látið ýmislegt sitja á hakanum í mínu lífi í vetur.
En já, það er orðið erfiðara og erfiðara að mótívera sig í að taka æfingar inni og ég get ekki beðið eftir því að komast út. Í haust var þetta öfugt, þá var ég kominn með leið á að hjóla í einhverju tilgangsleysi úti og þráði strúktur og æfingaplan inni í hlýjunni. Allt er best í hófi og gott að hafa fjölbreytileika. Í haust er ég viss um að ég verði orðinn spenntur að komast út að hlaupa og fara í ræktina.
Laugardagsæfingin á eftir að taka í. |
Æfing gærdagsins var 3x15 mín Steady State sem er yfirleitt rétt undir FTP-inu (threshold). Æfingin var rúmlega 2 klst. í heildina og ég var bara djöfulli sprækur. FTP-ið hjá mér er stillt á 260 núna og ég átti því að halda 245 w í keyrslunum. Á laugardaginn er hinsvegar LÖNG threshold æfing (3x15mín á FTP) þar sem ég á að halda 260 w í keyrslunum og það á örugglega eftir að taka vel í.
Hjartalæknirinn hringdi í mig í gær og tilkynnti mér að það hefði allt komið vel út úr 24 klst. Holter skannanum. Ég s.s. reiknaði ekki með öðru en gott að fá það staðfest. Ég sagði honum að ég hefði ekkert fundið síðan ég hætt að nota púðana og hann sagði að þetta væri orðið býsna algengt. Hjartsláttatruflanir út af ADHD lyfjum og nikotínpúðum. "Það er annar hver maður á ADHD lyfjum sagði hann".
En neikvæðu hliðarnar á því að vera hættur að taka í vörina eru að ég er farinn að troða miklu meira af mat í andlitið á mér. En þetta er flóknara en það. Rannsóknir hafa sýnt að nikotínneysla dregur ekki einungis úr matarlyst, heldur eru sterkar vísbendingar til þess að nikotín auki líka efnaskipti og fitubrennslu. Ef það er ekki nóg, þá hafa rannsóknir leitt í ljós að nikótín getur einnig bætt árangur í æfingum og aukið fitubrennslu á meðan á þeim stendur.
Exercise Performance Enhancement: Some research suggests that nicotine may improve exercise performance by increasing endurance and reducing perceived exertion. This could indirectly lead to greater fat burning during physical activity.
En maður verður að horfa á langtímaáhrifin og það er að sjálfsögðu miklu meira unnið með því að losa sig við þetta eitur.
En það sem ég ætlaði að koma inn á varðandi þetta er að ég steig á viktina í morgun og hún stóð í 66 kg. sléttum. Þegar ég kom frá Kanarí þá fór ég niður í 63,8 kg. Þetta þýðir að ég verð að fara að huga betur að því hvað ég er að borða því ég má alls ekki vera kominn yfir 65 kg. þegar keppnistímabilið byrjar.
Ummæli