Ekki að standa mig

Nýju Castelli fötin sem ég var að testa.

Nú ligg ég uppi í rúmi að bíða eftir að baðið sem ég var að láta renna í kólni. Og já, annar fóturinn á mér er hálf brunninn. En ég vil byrja þennan pistil á því að biðja þessa 2-3 tryggu lesendur mína [skv. Google Analytics], sem koma hingað inn daglega, afsökunar á því að hafa verið latur að skrifa. En það segir kannski eitthvað til um það hvað það hefur verið ógeðslega mikið að gera hjá mér.

Ég ætla að byrja á því að dæma þessi Castelli föt sem ég er í á þessari glötuðu uppstilltu mynd sem snilld. Gott snið, fínn púði, efnið virðist sterkt og gott, sporðdrekinn fallegur (ég er líka sporðdreki), flottir litir, flott lúkk, mikið líturðu vel út beibí frábært hár. Ég er ekki sponsaður af Tri en Valur vinur minn gefur mér samt alltaf fínan díl og þeir eru alltaf mjög almennilegir. Ef þið eruð í Reykjavík mæli ég með að þið verslið bara við þá.

Annars er ég að koma út úr hvíldarviku þar sem ég tók bara endurance og mér líður vel. Þetta voru tæpir 9 tímar með aukaæfingu sem ég tók á laugardaginn (útihjól). Núna erum við að færa okkur yfir í meira intensity (neuromuscular/sprettir) og ég er hrikalega peppaður í það. 

Ég steig á viktina í morgun og er orðinn tæplega 4 kílóum þyngri heldur en þegar ég kom frá Kanarí. Kannski ekki alveg að marka eftir sukk aldarinnar um helgina. Núna er ég kominn á bremsuna og ætla að fylgjast hart með þessu og vera aðeins vondur við mig þegar kemur að mat. Stóð mig nokkuð vel í dag en betur má ef duga skal. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap