Að hafa hausinn í þetta

Þröskuldsæfing helgarinnar var af sverari gerðinni!

Það er stundum sagt að þolíþróttir eins og hjólreiðar og maraþon séu keppni í að þola sársauka. Hluti af því að ná árangri í þessum greinum er genetískt, að hluta til snýst þetta um aga og svo þarf maður að þola sársaukann og óþægindin sem fylgja þessu. Þ.e.a.s. ef maður vill ná árangri og keppa. Það er algengur misskilningur hjá þeim sem eru að byrja í þessu að halda að þetta skáni eftir því sem maður kemst í betra form. Þetta versnar bara- eina breytingin er að maður fer að fara hraðar og lengra í leiðinni. En allavega...

Um helgina tók ég eina æfingu sem var bæði erfið fyrir hausinn og lappirnar. 3x18 mínútur á FTP-inu mínu með 40 mínútna endurance köflum á milli. Það er alveg barátta að klára þetta og ég þarf að vera nokkuð skapandi til að klára þetta. Þegar ég segi skapandi þá meina ég að standa upp og setjast á víxl, þyngja gír, létta gír osfv. En ég kláraði þetta skammlaust og gaman að fá jákvætt komment frá þjálfaranum. 

Ég vona að svona æfingar hjálpi manni í sumar þegar maður þarf að fara að grafa djúpt í keppnum. Og 20 mínútna FTP test lítur ekki alveg jafn hræðilega út þegar maður hefur prufað að vera 3x18 mínútur á þessum stað. Ég hef grun um að FTP-ið hjá mér hafi hækkað. Aldrei verið hærra.

Þessi vika lítur frekar illa út hjá mér verkefnastöðulega séð og ég lét Ingvar vita af því. Með hörku hefði ég s.s. geta náð inn 11 klst. en Ingvar sagði að það væri fínt að taka eina rólega viku. Það verða bara 7 klst. endurance og það er sennilega ágætt þó maður óttist það alltaf að hægja á.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap