Gangurinn
CUBE LITENING AERO C:68X PRO 2023 |
Langaði bar aðeins að fara yfir stöðuna á pumpunni eftir þessa helvítis óreiðu. Var fucked á föstudaginn, fínn mest allan laugardaginn. Kom smá rugl á mig á sunnudaginn, aðeins verri í gærkvöldi og svo ekki laveg góður í dag. Ég drekk 2 kaffibolla á dag og hef skrúfað vel niður í púðunum, tek færri og hef þá miklu styttra en ég er vanur.
Ég tók frekar auðvelda klukkutíma æfingu fyrir flug til Reykjavíkur í morgun (er á fundi) og ætla að taka 1,5 - 2 klukkutíma á morgun. Þetta vesen byrjaði hvort sem er þegar ég var með 3 hvíldardaga og ég held að þetta séu pottþétt ekki æfingarnar. Ég held að Ingvari lítist ekkert allt of vel á þetta og hann setti bara á mig recovery og endurance æfingar út vikuna sem er stutt miðað við hvað við hefðum verið að gera.
Ég reyni bara að sýna þolinmæði áfram og fara vel með mig. Það er gott að vita að maður komist í þennan 24 tíma skanna fljótlega en ég stefni að því að vera laus við þetta fyrir þann tíma.
Valur vinur minn í Tri hafði samband við mig og þeir voru að bjóða mér fínasta díl í þetta Cube hjól sem er þarna á myndinni. Ég hugsaði mig vel og lengi um en ákvað að lokum að vera skynsamur og halda mig við Giant hjólið í eitt tímabil í viðbót. Ég er orðinn of gamall og skynsamur til að fara að steypa mér í skuldir fyrir svona hluti. Langar frekar að gera þetta þegar ég hef efni á því. En ég enda ábyggilega í Cube fjölskyldunni því þeir hafa gert vel við mig og veita bestu þjónustu sem ég hef fengið í hjólabúð.
Ummæli