Tvær góðar þrátt fyrir þunga viku.
Nesti fyrir 3 tíma Z2 endurance æfingu. |
Æfingar ganga vel þrátt fyrir mikið álag í vinnunni. Í gær tók ég helvíti skemmtilega 30/30 anaerobic- sem þýðir 30 sekúndu sprettir með 30 sekúndna hvíld á milli, endurtekið 10x. Fyrir og eftir sprettina tók ég endurance og því var æfingin 1,5 klst. Vöttin í sprettunum voru reyndar frekar lág, þannig að þetta var í rauninni ekkert mál.
3 klst. endurance æfing sem ég tók eftir vinnu í dag. |
Í dag var aðeins stærri pakki hjá mér, 3 klst. endurance æfing á zone 2. Ég var s.s. ekkert slappur en það vantaði samt allt "snapp" í lappirnar á mér. Í byrjun reyndi ég að halda uppi sæmilega hröðum snúningi (90 rpm) en var ekki að meika það. Fannst ég þurfa að vera að hugsa of mikið um hvað ég var að gera. Þá gíraði ég niður um einn gír og var að lulla á 80 snúningum og ca. 180 vöttum út tímann. Þetta tók alveg í og ég var ekki alveg að nenna þessu. En þetta hafðist á endanum og ekkert eðlilega gott að henda sér í bað og fá sér einn espresso.
Eins og venjulega þá passaði ég að næra mig nóg á hjólinu á þessum 3 klst. þá át ég 2 banana, 2 Trek orkustykki og slatta af Haribo gúmmi. Síðan drakk ég eina flösku af Gatorade, 1 brúsa af vatni og einn með söltum. Mér veitti sennilega ekkert af þessu því ég brenndi rúmlega 1800 kgcal.
Ummæli