Kanarí handan við hornið

Á ferðinni í gegnum Grandilla de Abona á Tene í fyrra.

Við Harpa vorum búin að fara fram og aftur varðandi hvort við ættum að skella okkur til útlanda í vetur. Ég var búinn að draga lappirnar með að taka ákvörðun og var ekki nægilega spenntur. Hluti af ástæðunni var að ekki er lengur í boði að fara frá Akureyri og allt umstangið varðandi gistingu í Keflavík og þessa aukadaga sem það kostar að fara þaðan voru að draga úr manni.

En eftir þetta hrikalega álag sem hefur verið á manni í vinnunni upp á síðkastið þá bara gat ég ekki hugsað mér að hanga hérna í sama umhverfi í kulda og trekki í allan vetur. Ég er gjörsamlega að vera útúr steiktur og þarf frí. Í gær bókaði ég því ferð fyrir okkur Hörpu til Kanarí í mars.

Ástæðan fyrir því að við völdum Kanarí en ekki Tene er einfaldlega sú að þeir hjólarar sem maður hefur talað við og hafa prufað hvoru tveggja mæla frekar með Kanarí. Fjölbreyttara leiðarval og minni umferð er það helsta sem maður hefur heyrt. Þar að auki var Tene að verða uppbókuð.

Nú þarf maður að fara að gefa sér tíma til að leggjast yfir bestu leiðirnar og athuga hvort það séu ekki einhverjir epic staðir sem maður verður að skoða. Það eina sem ég veit er að mig langar til að skoða Táradalinn sem ber víst nafn með rentu.

Annars þarf maður að fara að huga að hjólinu, kaupa dekk, laga bremsur og kannski kaupa nýjar hjólabuxur. Meira um það síðar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap