Þung vika
Vikan á Training Peaks. |
Núna fékk ég loksins hvíldarviku á hjólinu og hún hefði ekki getað komið á betri tíma. Það er víst kominn fimmtudagur og ég er búinn að vera gjörsamlega á hvolfi á öllum vígstöðvum og vinnan hefur verið mér erfið. Ofan á það hafa bæst veikindi barna og annað álíka skemmtilegt. Ég sé þetta meðal annars á hvíldarpúlsinum sem hefur verið hár þó ég sé eiginlega ekkert búinn að hreyfa mig. Og ég get alveg viðurkennt að á köflum er ég búinn að vera að bugast- ég skal bara vera hreinskilinn með það. En ég minni mig á að alltaf styttir upp um síðir og ég hef verið í svipuðum aðstæðum sem hlýtur að hjálpa.
Eins og ég hef margoft komið inn á áður þá eru svona hvíldarvikur gerðar til að gefa líkamanum færi á að jafna sig eftir erfiðið og standa sterkari á eftir. Fyrst rífur maður niður en byggir svo upp aftur, en í þetta skiptið bætir maður örlítið meira af byggingarefni í jöfnuna. Verst hvað það hefur neikvæð áhrif að vera undir svona miklu andlegu álagi og ég vona að ég nái að vinda ofanaf því sem fyrst.
Góðar stundir
Ummæli