Sista vecka!

Síðustu vikur á Strava.

Nú er alveg hreint dásamlegri helgi lokið, vinnan skollin á með öllu sínu hafaríi og stressi og börnin koma til mín í dag. Við Harpa nutum þess í botn að vera saman um helgina, æfðum eins og skepnur, fórum tvisvar í sund, hámorfðum á Hobbitann og buðum fjölskyldunni hennar í kaffi í gær.

Eins og kom fram í síðasta pistli þá var æfingavikan nokkuð strembin hjá mér og ég kláraði rúma 12 tíma á 6 dögum, samtals 440 km. Í því voru erfiðar þröskuldsæfingar (threshold + steady state), ein löng tempo æfing og svo 3 klst endurance í gær. Skemmtilegasta æfing vikunnar var 2x25 mín tempóæfing sem ég steinrotaði. Hélt ríflegum vöttum allan tímann og púls var alveg jafn í gegnum bæði settin.

Það er óhætt að segja að það hafi verið komin smá þreyta í mig á æfingunni í gær en ég setti undir mig hausinn og kláraði hana eftir uppskrift. Annars er ég bara nokkuð brattur í dag og varla hægt að segja að ég finni þreytu í fótunum.


Síðasta vika var 12 tímar og nú er ég að detta í aðra sem verða 11 tímar.



Ingvar setti í gærkvöldi inn 11 klst. viku núna sem er frekar strembið þar sem ég er með börnin. Ég verð því að skipuleggja mig vel og ætli ég byrji ekki á því að vakna klukkan 05:30 í fyrramálið og klára fyrstu æfingu vikunnar sem er þolæfing. Ég treysti mér ekki í þröskuld eða steady state svona snemma dags og tek þær eftir vinnu.

Að lokum, þegar við Ingvar ræddum saman fyrir viku síðan var áherslan á 2 atriði; að halda áfram að reyna að stækka vikunar og taka alltaf allavega 3 klst. á sunnudögum. Þetta er því í takt við það.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap