Þrjátíu - fimmtán og kóf

20mín Vo2max - 2x 20x(30+15s) + 10m RBI
 

Harpa er búin að vera slöpp í 2 daga og komin með í hálsinn, eitthvað sem hún er ekki vön. Í gær sagði hún að henni liði alveg eins og þegar hún fékk covid. Ég er hinsvegar búinn að vera þokkalegur en var aðeins sár í nefinu í gærkvöldi, með smá stíflur og fann smá breytingar í hálsinum. 

Ég mat stöðuna þannig í morgun að það væri ekki útilokað að við værum komin með covid en þar sem mér leið þokkalega ákvað ég samt að taka þessa massífu 30/15´s (30 sek ON og 15 OFF - 2x20) sem var á dagskránni. Þetta var ekki átakalaust en miklu skárra en ég bjóst við. Ég var nokkuð sterkur.

Þetta er önnur vikan í röð þar sem það er þreyta í mér á fyrstu erfiðu æfingunni en svo skána ég bara eftir því sem líður á vikuna og álagið verður meira. Ég hef alltaf talið að ég væri sterkastur þegar ég hvíli vel fyrir stórar æfingar eða mót en núna er ég farinn að velta fyrir mér hvort það henti mér þokkalega að vera á meira álagi alveg fram að móti. Fólk er mjög misjafnt með þetta og sumir verða alveg ónýtir ef þeir taka t.d. einn dag alveg í frí og annan rólegan. Ætla ekki að lesa of mikið í þetta en finnst áhugavert að fylgjast með þessu.

Búmm- jákvætt covid test frá Hörpu.

En viti menn, rétt eftir að ég kláraði æfingu dagsins sendi Harpa mér mynd af jákvæðu covid-testi og þar með lá það fyrir. Ætla nú ekki að segja að þetta hafi komið mikið á óvart eða sé neitt sjokk. Bara fínt að fá þetta á hreint. Það eina sem ég er stressaður með er að ég á tíma hjá húðlækni á mánudaginn í Reykjavík og er búinn að panta mér flug, bílaleigubíl og allan pakkann.

Ég er kominn yfir til Hörpu aftur og læt svo bara ráðast hvað gerist. Ef ég smitast þá hefur það eflaust átt sér stað nú þegar. Við höldum samt fjarlægð og ég kannski tek test annað kvöld. Það sem ég óttast mest er að þurfa að taka frí frá æfingum. Covid er bara þannig padda að það er ekki nóg að taka bara frí á meðan maður er slappur heldur er beinlínis varhugavert að reyna mikið á sig í 1-2 vikur á eftir. En ég tek einn dag í einu og vona það besta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap