Ekki að standa mig..
Ég kom Hörpu á óvart um daginn og gaf henni fullt af myndum af okkur sem ég hef tekið síðan við kynntumst. Þetta var ein af þeim- geggjaður dagur í Masca á Tenerife. |
Ég hef haft um allt annað að hugsa en að blogga. Það gengur ekki. Ég er ekki með börnin þessa viku en 2 klukkutímar af æfingum á dag og ofurálag í vinnunni skilur mann eftir loftlausann. En Harpa er að vinna í kvöld og ég gef mér þá smá tíma til að hripa eitthvað niður.
Ég átti fund með Ingvari Ómars á mánudaginn og við fórum aðeins yfir stöðuna. Hann er ánægður með ganginn í þessu hjá mér en vill að við prufum aðeins að bæta í æfingamagnið (12 tímar þessa vikuna). Núna höfum við tekið eina góða blokk af þoli og þröskuld (endurance og threshold) og eftir það tókum við góða VO2 max blokk. Hann hækkaði FTP-ið hjá mér um 10 á mánudaginn og nú endurtökum við leikinn. Þol og þröskuldur- síðan vonandi ein góð æfingaferð til Kanarí og svo aftur í VO2 max blokk þegar ég kem heim. Eftir það viljum við sjá góðar bætingar.
Í dag var fyrsta þröskuldsæfingin með nýju FTP og ég gerði s.s. engar rósir. Ég er orðinn drullu kvefaður og var á báðum áttum með hvort ég ætti að taka æfingu eða ekki. En ég lét slag standa og svo verður bara að koma í ljós á morgun hvort þetta var heimskulegt. Ég hef verið að bíða eftir því að verða veikur og það lítur út fyrir að það sé að raungerast. Það hlaut að koma að þessu og ofnæmiskerfið væntanlega ekki mjög sterkt í öllu þessu álagi.
Ummæli