Lífið í borginni

Á leið frá Reykjavík í gær

Ég var að vinna í Reykjavík þessa vikuna og þó þetta hafi ekki verið nein skemmtiferð þá var satt best að segja mjög gott að breyta aðeins um umhverfi. Eftir erfiðar vikur á hjólinu var líka fjandi fínt að fá smá hvíld. Ég reyndar fór í World Class í Hafnafirði  á miðvikudaginn og tók eina æfingu með Hjólreiðafélaginu Bjarti og það var bara mjög skemmtilegt.

Valur kunningi minn bauð mér í heimsókn í Tri (hjólabúð) í vikunni og sýndi mér í alla króka og kima. Hann bauð mér kaffi og tertu og við spjölluðum um hjól og hjólasportið í víðu samhengi. Tri er að stækka og þeir eru komnir með alveg geggjaðan lager (m.a. fyrir stærri og betri vefverslun) og með ótrúlega flott verkstæði í húsið við hliðina á. Ég notaði tækifærið og keypti mér slatta af geggjuðum Castelli fötum á frábæru verði. 

Threshold/Tempo- nokkurskonar over/under afbrigði sem var hrikalega skemmtileg.

Þegar við komum að sunnan í gær (föstudag) tók ég eina klukkutíma rólega æfingu og var ekki eins sprækur og ég hefði búist við eftir alla þessa góðu hvíld. Í dag var aftur á móti á matseðlinum mun erfiðari æfing þar sem maður tók 2 mínútur á threshold en datt svo í 6 mínútur á tempo (endurtekið 4x). Það er skemmst frá því að segja að ég gjörsamlega slátraði þessari æfingu og leið alveg einstaklega vel. Ég finn að það sem við höfum verið að gera er byrjað að skila árangri og það er ekkert smá gaman.

Á morgun á ég svo 3 tíma endurance æfingu sem er passlegt til að ná 100 kílómetrunum. Langt síðan ég hef gert það.



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap