Consistency

Síðustu 4 vikur!

Er á hraðferð, á leið í flug til Reykjavíkur þar sem ég fæ smá hvíld frá æfingum. Kannski kominn tími á það og gaman að sjá hvort maður verður ekki sterkari þegar maður kemur til baka. Búinn að hjóla rúmlega 340 km í þessari viku og er sáttur með það. Verst að ég komst ekkert í ræktina.

Hérna sést hvernig Ingvar lét mig dúndra upp æfingamagninu síðustu 5 vikur.

Ég er ótrúlega ánægður með hvernig þetta er að þróast hjá okkur og er vel á verði með allt sem gæti bent til þess að ég sé að ganga of langt. Bakverki, þreytu og öll þessi klassísku merki. En ég er duglegur að passa matinn og hvíla mig vel.

Meðaltal síðustu vikna á Strava

Ég ætla að njóta þess að taka því rólega í Reykjavík 3 daga en Valur Rafn kunningi minn er reyndar búinn að bjóða mér í hjólatíma í World Class í Hafnafirði. Það verður gaman að komast þangað og hitta fólk. Kem aftur norður á föstudag og reikna með að setja allt í fullan gang þá.

Lifið heil!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap