Vikulok

Gæsaskaf- léttsteiktar þynnur úr gæsabringum í sósu.

Ég hef aldrei verið verulega hrifinn af gæsabringum, nema helst þegar þær eru grafnar. Oft finnast mér þær ekki nægilega djúsí og þegar ég er kominn í gegnum hálfa bringu er ég kominn með nóg. Pabbi var sömu skoðunar þangað til hann prufaði að nota uppskrift fyrir "renskav" (hreindýraskaf). Skerið kjötið í þunnar sneiðar, léttsteikið. Hrærið upp sósu á pönnunni eftir steikingu, t.d. með sveppum og lauk og setjið svo kjötið út í bara í smá stund. Þórður bauð okkur börnunum í svona veislu í Duggufjöru í gær og þetta var alger snilld, vel meirt og djúsí.

Æfingar hafa gengið vel þessa viku og ég er búinn með þrjár af sex hjólaæfingum og á eftir að fara 2var í ræktina. Spurning hvort ég verði alveg grillaður á sunnudaginn? Álagið í vinnunni og lífinu almennt er búið að vera fram úr hófi alla vikuna og ég dansað á línnunni með að veikjast. Korter í kvef. Góðu fréttirnar eru að ég hef ekki fundið fyrir þessu á æfingum og er öflugur. Mun öflugri en ég hefði þorað að vona.

Í næstu viku er samt komið að stóru stundinni og ég þarf að taka 1, 5 og 20 mínútna test. Eftir það kemur í ljós hvort álagið á æfingunum færist eitthvað niður eða verði svipað. Það er í öllu falli ljóst að ég verð að reyna að nota hvíldardaginn á mánudaginn næsta til að safna kröftum því svona test taka hrikalega mikið úr manni. Þetta er með því erfiðara sem maður gerir.

Annars hlakka ég til helgarinnar sem ég mun eyða með börnunum. Sértaklega hlakka ég til í kvöld að kíkja með þeim, mömmu, Agli og systrum mínum á Geira og félögum í Haukum mæta KA. Verst að Harpa er að vinna og getur ekki verið með.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap