Svona getur maður skipulagt sig.

Vikan á Training Peaks.

Síðasta vika var alveg einstaklega pökkuð hjá mér og ég sá varla fram á að ná að æfa neitt. Ég lagði af stað snemma á þriðjudagsmorgun í vinnuferð í Borgarfjörð og kom ekki heim fyrr en seinnipartinn á miðvikudaginn. Við strákarnir í Sperðlunum vorum líka að fara í okkar árlegu gæsaferð á fimmtudeginum og öll helgin undirlögð. Ég var búinn að velta því fyrir mér hvort ég ætti kannski bara að hvíla alveg og reyna að minnka aðeins álagið á mér.

En þetta endaði með því að ég fór í ræktina og hjólaði á mánudeginum, Ingvar henti svo inn 2 æfingum á miðvikudag og fimmtudag. Á laugardaginn fengum við strákarnir okkur svo léttan göngutúr og fórum í smölun á Helluvaði (ekki í dagatalinu). Ég og Þolli skelltum okkur svo út að hlaupa í morgun og ég ákvað að hjóla þegar ég kom heim.

Ég át eins og skepna alla vikuna og núna líður mér helmingi betur að hafa troðið inn æfingum þó tíminn hafi verið naumur. Vika sem ég var búinn að afskrifa endaði með 6 fínum æfingum og léttum göngutúr. Aldrei gera ekki neitt (nema náttúrulega þegar kominn er tími á hvíldarviku).

Ingvar er búinn að henda inn æfingum fyrir vikuna og hún er frekar busy, 6 æfingar og rúmlega 9 klst. Við eigum okkar fyrsta fund á morgun um hvernig við leggjum þetta upp og ég þarf að fá frá honum ráð varðandi hvernig ég kem ræktinni inn í plönin. Spennandi tímar fram undan.

Eina myndin sem ég tók í gæsaveiðinni. Hóflega veitt, 7 gæsir féllu.


Smölun á Helluvaði- Geir spjallar við Þolla og Þórð.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap