Heimskuleg PB tilraun

Spurning hvað við eigum eftir að ná mörgum túrum saman í viðbót í haust? Við erum bæði komin með pínu ógeð á að hjóla í augnablikinu og ég finn að ég er þreyttur og áhugalaus.

Ég var búinn að ákveða að reyna að bæta tímann minn Glerá - Skíðahótel í þessari viku og veðurspáin benti til þess að dagurinn í dag eða á morgun væri ágætis kostur. Ég var hinsvegar ennþá frekar slæmur af strengjum í morgun og því kannski ekki gáfulegt að fara í dag. En þegar ég hjólaði úr vinnunni fannst mér eins og lappirnar á mér væru í ágætis standi þannig ég lét vaða á þetta.

Eftir smá upphitun lagði ég svo upp í Hálandabrekkuna og mér leist ágætlega á þetta í byrjun- utan við að það var smá vindur á móti. Ég var búinn að lofa sjálfum mér að byrja rólega til að eiga eitthvað inni í lokin en fór sennilega örlítið fram úr mér. Þegar ég var svo að nálgast síðustu beygjuna var ég kominn í bullandi vandræði og átti erfitt með að halda tempo. Ég sá það á klukkunni að þetta myndi aldrei ganga og ég snéri bara við og ákvað að pína mig ekki frekar á þessu.

Ég var kominn með 14:10 mínútur þegar ég hætti og hafði haldið 277 vöttum sem er ekkert langt undir því sem ég var þegar ég náði metinu mínu. Ég var búinn að halda 12,71 km/klst en hefði þurft að vera á rúmlega 13 km/klst til að vera öruggur á metinu. 

Ég er pínu svekktur að hafa verið að eyða púðri í þetta núna og miðað við ástandið á líkamanum hefði ég getað sagt mér að svona færi. Ég nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér og reyna að stilla upp æfingum eftir þessu.

Núna er ég að spá í að hjóla bara rólega næstu daga og reyna að safna smá orku. Sjá svo til hvort ég verði ekki heppinn með veður einhvern daginn þannig að ég geti strikað þetta út af listanum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap