Dagur í lífi mínu - 26.09.2023

Morgunstund í ræktinni með Hörpu.

05:20: Vaknaði, át banana og kom mér fljótlega út.
06:00: Brennsla í ræktinni, sæmilega erfiður og sveittur tími.
07:10: Kom heim, vakti börnin, fór í bað og kom öllum af stað. Smoothie + rist.
07:55: Mætti í vinnu, smá kaffi og svo var alger geðveiki. (Smootie + hrökk kl. 10:00)
12:20: Át rest af soðnum fiski með kartöflur, einn bolla af kaffi og svo aftur að vinna.
15:30: Stimplaði mig út og hjólaði heim.
16:00: Settist á hjólið og hjólaði 35 km í Group Ride á Zwift. Át morgunkorn og banana á undan og Trek stykki á hjólinu + 1 brúsa af vatni
17:00: Fór í bað og gekk svo frá þvotti og gekk frá í eldhúsi. Smá prótein og 2 nammi
18:30: Skildi Dagbjörtu eftir heima og hjólaði til BRB á æfingu. Fórum að máta búning fyrir körfuna (rúmlega 6 km.)
19:30: Grillaði samlokur, spældi eggi og skar niður ávexti með súrmjólkinni.
20:00: Gekk frá í eldhúsi og hjálpaði Dagbjörtu með stærðfræði. Lestur hjá báðum og BRB fór í bað.
21:00: Dagbjört í bælið og ég fer að ganga frá þvotti og græja fyrir morgundaginn.
21:15: Sest niður í fyrsta skiptið í dag og kíki á fréttir. Einn bolli af kaffi enda hef ég ekki áhyggjur af því að verða andvaka þennan daginn.

Fínn dagur en ég vona að morgundagurinn verði aðeins rólegri.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap