Rólegur morgun í borginni
Við Meðalfell í Kjós. |
Ég er að reyna að stressa mig ekki of mikið upp fyrir þessa keppni í dag enda almenningshjólamót og lítil hætta á að maður lendi einn á auðum sjó. Ef ég lendi ekki í neinum skakkaföllum á ég að verða frekar ofarlega (svo ég jinxi þetta nú). Er aðeins búinn að kíkja yfir keppendalistann og við erum held ég 5 stk. sem keppum reglulega í B-flokki og þetta er fyrir neðan virðingu þeirra sem keppa í Elite. En það geta að sjálfsögðu dottið inn sterkir hjólarar sem maður þekkir ekki og einhverjir útlendingar eru líka skráðir.
Leiðin sem við förum í KIA Gull í dag. Hún er 59 km, marflöt og með 8 km kafla þar sem skiptist á möl og malbik (samtals 5 km á möl). |
Plan dagsins hjá mér er að koma mér fyrir fremst á ráslínu svo ég þurfi ekki að vinna mig upp í gegnum hópinn, það er varasamt þegar mikið er af óreyndum hjólurum (sem ég reikna með að verði). Ég ætla að reyna að hanga með fremstu mönnum að mölinni og gefa allt í það (farið er réttsælis). Komist maður klakklaust í gegnum mölina með fremstu mönnum hef ég grun um að maður verði frekar ofarlega. Ég geri mér ekki væntingar um að verða á palli í heildina en gæli við að komast á pall í 40-49 ára.
Næstu helgi förum við svo að keppa á 3. og síðasta bikarmótinu sem verður í Kjósinni. Við fórum þennan hring í gær og mér líst ekki vel á hann. Þetta er marflatt og mér finnst lítið spennandi að fara 4 hringi. Skráning á það mót er ekki komin í fullan gang og ég átta mig því ekkert á hvernig mætingin verður. Ef ég verð um miðjan hóp verð ég ánægður og það mundi skila mér ofar á lista í stigakeppninni ár heldur en ég hefði þorað að vona.
Ummæli