Vinnuslys!

Táin í morgunsárið.

Þegar ég kom á hótelherbergið í fyrradag byrjaði ég á því, eins og ég geri alltaf þegar ég kem á hótelherbergi, að taka túr og meta ástandið. Marriot í Bonn er ekkert slor, fallega innréttað, tandurhreint, stórt og gott sjónvarp, sloppar og inniskór fyrir spa-ið, geggjað rúm fullt af koddum, stórt bað og að sjálfsögðu kaffi og vatn á flösku. Það sem ég var samt ánægðastur með var geggjaður hægindastóll með borði. Þetta er lúxus sem er ekki alltaf til staðar.

Ég hlammaði mér niður í stólinn, skellti fótunum upp á borð og slakaði á í smá stund. Ég hugsaði að þrátt fyrir að allt annað á þessu hóteli yrði flopp, þá allavega hefði ég alltaf þennan stól til að hugga mig við. Á þessum tímapunkti grunaði mig ekki að hann ætti eftir að valda mér verulegu líkamstjóni og óbærilegum sársauka sem myndu setja öll mín plön um atvinnumennsku í hjólreiðum í uppnám.

Klukkan 04:00 í nótt vaknaði ég til að fara á klósettið, stökk fram úr rúminu og náði að dúndra litlu tánni í einn fótinn á helvítis stólnum. Þetta var hrikalega sárt en sársaukinn hvarf þó býsna fljótt. Þetta voru bara náttúrulegu verkjalyfin og bólguviðbrögð líkamans að störfum. Ég var sjóðandi heitur á fætinum og með æðaslátt í tánni þegar ég lagðist upp í aftur en ég náði samt að sofna frekar fljótt.

Ég vaknaði klukkan sex í morgun til að taka æfingu og fann strax að ég væri allavega ekki að fara að hlaupa neitt. Ég fór niður í rækt og hjólaði slatta á þessu fáránlega æfingahjóli sem er í boði (það var s.s. í lagi) og svo tók ég fram- og uppstig (það var óþægilegt), magaæfingar og smá teygjur. Og það er vont að labba í venjulegum skóm. Ég sting við.

Ég held að þetta ætti að sleppa fyrir hjólið en á eftir að finna hvað gerist þegar ég treð mér í þrönga hjólaskó og hjóla. Ég er ekki viss um að það verði þægilegt að standa upp á hjólinu og taka spretti. En það er allavega ljóst að ég er búinn að takmarka aðeins hvað ég get gert fram að mótinu og er ógeðslega svekktur að hafa lent í einhverju svona hrikalega aulalegu. Það eru samt 3 dagar eftir af skráningafrestinum í mótið þannig að ég sé hvernig þetta þróast. Í versta falli verð ég bara á kanntinum fyrir Hörpu.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap