Stress að morgni dags- Íslandsmót
Við Harpa hjóluðum á Þingvöllum í gær. |
Íslandsmót í götuhjólreiðum
Þingvellir
24.06.2023
101 km
Ræsing: 17:00
Við Harpa fórum á Þingvelli í gær og tókum smá túr. Við fórum litla hringinn (sem Harpa hjólar 4x) og svo keyrðum við þennan risahring sem ég á að fara (101 km) svo ég fengi smá brautarskoðun. Góðu fréttirnar eru þær að táin og fóturinn á mér voru til friðs, en vondu fréttirnar eru að ég er eitthvað smeykur um að ég sé ekki í nægilega góðu formi og ég er drullu hræddur um að ná ekki að halda mér í hópnum. Það er versti ótti allra sem keppa í hjólreiðum að lenda á auðum sjó og þurfa að dingla einhverstaðar í tómarrúmi og fara kannski 5 km styttra á klukkustund.
Mér leist ágætlega á brautina en verð þó að viðurkenna að ég var að vonast til að það væru meira afgerandi brekkur. Flestar hækkanir eru í það litlum halla að þær munu sennilega ekki nýtast mér nægilega vel. LANGIR kaflar eru alveg flatir og þar mun ég þurfa að hamast þangað til það fer að blæða úr augunum á mér. Góðu fréttirnar eru að hækkanirnar koma frekar seint í brautinni og maður vonar því að á þeim tímapunkti verði komin þreyta í þá sem verða með manni og maður geti sett þá undir einhverja pressu. Þ.e. ef maður verður ekki orðinn einn á þeim tímapunkti.
Ég man eiginlega ekki eftir því að hafa verið svona stressaður fyrir neitt mót og ég mun þurfa að nýta daginn í að ná mér í jafnvægi. Hér er það sem ég ætla að gera:
- Minna mig á að ég er að gera þetta til að hafa gaman
- Minna mig á að það skiptir engu máli hvernig þetta fer svo lengi sem ég kem heill í mark (engin press)
- Minna mig á að ég er þrátt fyrir að ég sé ekki kominn á þann stað líkamlega sem ég var að stefna að, þá er ég búinn að æfa vel í vetur
- Minna mig á að þetta mót er ekki í forgangi hjá mér
- Minna mig á að það verða örugglega einhverjir þarna sem eru ekki að eiga topp dag, borða ekki eins hollt og ég og æfa ekki eins vel. Jafnvel einhverjir sem fengu sér 1-2 bjórum of mikið í gærkvöldi
- Minna mig á að ég á heima þarna
- Minna mig á að ég er sterkari en ég vil gefa mér kredit fyrir
- Minna mig á að í síðasta móti gafst ég aldrei upp, kom alltaf til baka og skildi einhverja eftir
- Minna mig á að vera óhræddur við að vera fremst og vera með sjálfstraust
- Minna mig á að flestir eru jafn stressaðir og ég
- Minna mig á að vera ekki með minnimáttarkennd á sama tíma og ég vanmet ekki neinn
- Minna mig á þegar ég er alveg á limminu og kominn að því að æla þá líður hinum þannig líka
Síðan er það mikilvægasta og það er að brosa á ráslínu og hugsa um punkt 1
Ummæli