Dagbók á hraðferð

Kátar vinkonur á 17. júní í 23°C hita og sól.

 Laugardagur 17. júní.

Vaknaði um kl. 08:00, fékk mér kaffi og morgunmat. Skellti mér út að hjóla í 2 klst. Veðrið var geggjað, 23°C hiti en nokkur vindur. Hitta Villa við Hrafnagil og við hjóluðum saman inn að Smámunasafni og heim. Fór í bað, fékk mér smoothie og brauð. Fór með börnin á 17. júní hátiðarhöld. Fór heim á undan þeim og kláraði að taka mig til. Fór til Hörpu og hún keyrði mig á völlinn. Fékk mér Subway í Reykjavík og fór á Grand Hotel að sofa.

Spa-ið á Marriot í Bonn.

Sunnudagur 18. júní.

Vaknaði klukkan 04:00 og keyrði út á Keflavíkurflugvöll. Fékk mér avocado toast með eggjahræru, sódavatn og kaffi. Flugið gekk vel. Fékk mér súkkulaði, kaffi og vatn á leiðinni. Lenti í stressi í lestunum í Þýskalandi í 29°C hita og miklum raka. Fékk mér saltkringlu og vatn. Var alveg „toast“ þegar ég kom á Marriot og nennti ekki í bæinn. Fékk mér svakalegan skammt af nautasteik með fröllum og fersku grænmeti. Fór upp á herbergi og kláraði Tour de France á Netflix og sofnaði um klukkan 21:30 að þýskum tíma.

Útsýnið úr húsi Sameinuðu þjóðanna í Bonn þar sem ég er að funda.

Mánudagur 19. júní

Vaknaði klukkan 06:30 til að hafa góðan tíma til að koma mér á fundinn. Fékk mér kaffi og tékkaði á fréttum. Fór svo og fékk mér geggjaðan morgunmat; hafragraut, kornmeti, jógúrt, ferska ávexti, 2 linsoðin egg, þykkt gróft brauð með mygluostum, gúrku, skinku pariku og smá súra gúrku. Einn tvöfaldan expresso. 

Var mættur í byggingu Sameinuðu þjóðanna klukkan 08:00 og þurfti að skilja eftir vegabréfið mitt í afgreiðslunni og fara í gegnum vopnaleit. Þegar ég kom á fundarstað fattaði ég að ég átti að mæta klukkan 12:00 en ekki klukkan 08:00. Lán í óláni- fór á hótelið klæddi mig í íþróttaföt og hljóp 4 km í geggjuðum garði. Veður: 23°C og logn. Fór í ræktina á hótelinu þegar ég var búinn, hjólaði á einhverju fáránlegu hjóli með lappirnar láréttar, tók maga, upphífingar, bekkpressu og teygði hrikalega vel.

Eftir rækt ákvað ég að tékka á spa-inu sem ég hef aðgang að á Marriot og það er …STURLAÐ. Fimm tegundir af sauna, gufuböð, sundlaug, kaldur pottur, sófar, arineldur, nuddstofur, sjúkraþjálfun og bara að nefna það. Völundarhús (það er hægt að villast) af einhverri fokking snilld. Grillaði mig í finnskri sauna milli þess sem ég skellti mér í kaldan pott og frekar kalda sundlaug.

Fór aftur á UN Campus og tékkaði mig inn og fór í vopnaleit. Fékk góðan hádegismat, samlokur, eggjakaka í bollum, cous cous með falafel, tíramísú og ferksa ávexti. Kaffi. Sit núna á fundi sem ég á ekki að vera á og get því gefið mér smá bloggtíma.

Pælingar:

Ég pantaði mér á Marriot til að hafa aðgang að hjóli í ræktinni. Eina hjólið sem er eitthvað svipað og venjulegt hjól er bilað. Ég var eyðilagður þegar ég komst að því enda Íslandsmótið bara eftir nokkra daga. Ég veit að það er ekki mjög gott fyrir mig að hlaupa mikið núna svona stuttu fyrir keppni. Ég talaði við þjálfara fyrir nokkru sem ráðfærði mér að gera þetta alls ekki. En ég ræð ekki við mig, það er svo geggjað að komast út að hlaupa hérna í hitanum. Það er ekki eins og ég sé einhver atvinnumaður hvort sem er og ég er að reyna að vinna með stóru myndina. Að lokum, þá er þetta mót hjá mér ekki í forgangi. Ég sé til hvernig lappirnar verða á morgun en reyni allavega að hreyfa mig eitthvað og að sjálfsögðu að fara í þetta geggjaða spa. Stefni á að vakna klukkan 06:00. 

Afsakið hvað þetta er mikil hraðsuða............

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap