Á faraldsfæti

Á Seiðisfirði.

Vikan hjá mér hefur verið hálfgerð steypa það hefur verið svo mikið að gera hjá mér. Fór í vinnuferð til Egilsstaða í 2 daga og svo hef ég verið á hvolfi við að ganga frá lausum endum fyrir vinnuferðina til Bonn, taka mig til og svo að sjálfsögðu að æfa. 

Egilsstaðir - Seyðisfjörður.

Það bjargaði alveg vikunni að geta tekið með hjólið í vinnuferðina og ég notaði tækifærið og hjólaði til Seyðisfjarðar frá Egilsstöðum. Þetta er alvöru klifur báðumegin og ég fékk alveg geggjað veður. Steikjandi hiti á Egilsstöðum og ég var bara á bolnum þangað til ég fór að fara niður Seyðisfjarðarmegin. Gulli var búinn að benda mér á að taka þunnan jakka til öryggis og ég var feginn að hafa gert það.

Þessi leið er eflaust með þeim skemmtilegri sem hægt er að fara hérna á Íslandi ef maður fílar að klifra og það var rosalega gaman að koma niður á Seyðisfjörð sem var fullur af lífi. Ég settist aðeins niður á Öldunni og fékk mér kaffi og gulrótaköku og hélt svo yfir aftur. Það eina sem skemmdi þetta voru hrikalegar blæðingar á vegunum og sandur sem var búið að bera á til að stoppa þær. Hjólið var löðrandi og maður þurfti að fara mjög varlega niður.

Verðlaun í lok dags við N1 á Egilsstöðum.

Annars var það markmið hjá mér að "grafa mér smá holu" áður en ég fer í ferðalagið til Bonn. Ég hlóð því 5 æfingum á 5 daga og bömpaði upp CTL-inu mínu um nokkur stig en fæ svo 1-2 hvíldardaga (ef ferðalög kallast hvíld). Síðan hamast ég eitthvað á þrekhjóli á hótelinu, tek stutta spretti og held mér við. Hjóla svo rólega á föstudaginn í næstu viku með Hörpu fyrir sunnan og svo er Íslandsmótið í götuhjólreiðum laugardaginn 24. júní.

Vikan á Training Peaks.

En þetta er ekki eina keppnin á næstunni. Helgina eftir Íslandsmótið er KIA Gull og svo er bikarmót í Kjósinni þann 8. júlí. Við Harpa verðum því fyrir sunnan 3 helgar í röð og lífið í upphafi sumarfrís snýst því bara um hjólreiðar. Sem er mjög gott.

Jæja hef ekki tíma í meira mas.....

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap