Sofnaði á verðinum
VO2 max æfingin á þriðjudaginn. |
Ég hef verið á hvolfi og gleymdi alveg að kíkja á bloggið og kvitta. Í dag er þriðji æfingadagurinn í röð og ég enda þessa þriggja daga törn á rólegum 2 tímum. Á þriðjudaginn tók ég VO2 max æfingu í Veigastaðabrekkunni og negldi hana alveg eins og síðast. Stefnan var að halda 300 vöttum í 5x5 mín og niðurstaðan var 301 w að meðaltali fyrir þessi fimm sett. Niðurstaðan síðast var 301 w fyrir 5 sett. Ég hlýt að vera með einhverja greiningu.
Threshold æfing frá því í gær. |
Í gær var threshold æfing hjá mér og í staðinn fyrir að fara upp í fjall eins og venjulega þá ákvað ég að taka hana á undirlendi (eða því sem næst). Það er miklu erfiðara að halda stöðugt uppi háum vöttum á flata og það er fín æfing áður en maður fer að keppa. Fá smá hraða. Ég fór frá Leiruvegi inn Eyjafjarðarbraut-Eystri í suður í 20 mínútur, snéri við í 10 mínútur og endurtók leikinn. Í síðari ferðinni var ég kominn nánast inn að malbiksenda.
Þetta gekk sæmilega en var helvíti erfitt, sérstaklega að halda uppi vöttum niður brekkurnar. Þegar ég var búin með þessi 2 sett var ég sæmilega búinn á því og fattaði að ég hefði þurft að taka með mér meira að éta. Ég er þokkalegur í dag en ætla að reyna að halda mér alveg rólegum, bara recovery á ca. 120 vöttum.
Ég fer suður að vinna í fyrramálið en Harpa kemur svo um kaffileitið og við förum á árshátíð Umhverfisstofnunar annað kvöld. Förum norður aftur í hádeginu á laugardag, beint til að taka æfingu.
Ummæli