Lífið

Brynleifur og Árni voru með ótrúlega fína skákkynningu í skólanum í dag.

Ég er búinn að vera korter í kvef mest alla vikuna. Í gærkvöldi var ég orðinn eitthvað hálf slappur en held að ég hafi náð að bjarga mér fyrir horn með því að fara snemma í bælið og taka því rólega í dag. Tók klukkutíma super easy á hjólinu seinnipartinn og var svo bara að snattast hérna heima í hefðbundnum húsfeðrastörfum.

Á morgun er HFA æfing, hvíld á föstudaginn og svo Mývatnshringurinn á laugardaginn. Spáin er leiðinleg en það þýðir ekkert að hugsa um það. Það eru hvort sem er bara 2 sviðsmyndir: 1) Keppa, og þá verður öllum jafn kalt, eða 2) þessu verður aflýst og maður fær endurgreitt. 

Ég kíkti á kynngardag hjá 6. bekk í Lundarskóla í dag og Árni og Brynleifur voru með skákkynningu. Þeir voru búnir að útbúa heimasíðu með allskyns fróðleik um skák, Magnus Carlsen og aðra stórmeistara. Það sem var samt skemmtilegast hvað þeir voru áhugasamir að kynna þetta fyrir gestum og gangandi. Þeir lásu samviskusamlega upp hvert einasta orð á heimasíðunni, sýndu mannganginn, heimaskítsmát ofl. Margt hefur breyst til batnaðar í skólastarfi síðan maður sjálfur var í grunnskóla og mér finnst öll þessi skapandi vinna gefa þeim meira en að læra utanbókar eitthvað þrugl um kartöfluuppskeru í Póllandi eða endalaus ljóð sem gleymast svo strax. Jæja góða nótt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap