Bikarmóti frestað en svo kom crit

Blautur eftir skemmtilega crit-keppni.

Ekki höfðum við heppnina með okkur hérna fyrir norðan með veðrið þessa helgina. Mývatnshringnum, aðalmótinu mínu fyrir sumarið, var aflýst vegna veðurs. En önnur mót sem voru á dagskrá héldu plani og helgin snérist á endanum samt bara um hjól. 

Á laugardaginn kl. 14:30 var smá sárabót fyrir þá sem ætluðu að keppa í götuhjólakeppninni og blásið til samhjóls frá Hofi á Akureyri. Veðrið var þá orðið þokkalegt og nokkrir sterkir hjólarar að sunnan komu með okkur. Við hjóluðum inn að Smámunasafni og til baka. Síðan fórum við öll og fengum okkur hressingu á Centrum í Göngugötunni og gátum meira að segja setið úti í sólinni.

Í gærmorgun fór ég í Kjarnaskóg og fylgdist með XCO (fjallahjólakeppni) og það var bara helvíti spennandi. Þar sem Brynleifur er kominn með fjallahjóladellu held ég að það væri sterkur leikur hjá mér að fá mér nett fulldempað hjól fyrir næsta sumar til að leika mér á í skóginum með honum og keppa í Bláalónsþrautinni. Maður gæti þá líka prufað að skrá sig í XCO keppni til að sjá hvernig maður fílar það.

Í gærkvöldi var svo crit-keppni á bílabrautinni hérna uppi í fjalli og við Harpa skráðum okkur bara til að prufa. Í crit-keppnum er yfirleitt farinn lítill hringur með mikið af beygjum í 30 mínútur og þetta er "full gas racing" allan tímann. Í útlöndum eru þetta gjarnan aðeins stærri hringir, stundum í aflokuðum götum og þetta er mikið at, hálfgerður kappakstur. Það sem ég hafði mestar áhyggjur af var að krassa og skemma hjólið mitt.

Við vorum 5 skráðir í B-flokkinn og ég verð að viðurkenna að ég var að gæla við að komast á pall þó ég hafi aldrei prufað þetta áður. Fljótlega eftir startið endaði ég aftast með einum gaur úr B-flokki og einum Junior og náði ekki að komast fram úr þeim strax. Elite hópurinn og resetin af B-flokknum náðu fljótlega bili á okkur. Ég stakk svo hina af en náði aldrei aftur þessum 3 gaurum úr B og endaði því í 4. sæti af 5. Ég var svolítið óöruggur í byrjun og fannst ég pínu kraftlaust en þegar leið á var ég farinn að vera fljótari með hvern hring og öruggari í beygjunum sem voru rennandi blautar í rigningunni. Pínu svekkelsi en ég lærði fullt og fannst þetta gaman.

Harpa lenti í 3. sæti í B flokki á eftir tveimur efnilegum stelpum um tvítugt. Hún var alsæl með það. Á eftir voru svo grillaðir borgarar til að fagna lokum þessarar Hjólreiðarhelgar HFA. Fullt af fólki mætti og þetta var mjög gaman.




Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap