Vikuuppgjör

Stopp í Lindinni til að hringja, pissa og fá smá hita í puttana.

Þá er hvíldarvikan búin og ástandið á mér þokkalegt. Ég er reyndar búinn að vera með smá hausverk og pirring í hálsinum síðustu daga á kvöldin og morgnana. Þegar við Brynleifur kíktum út á Lundarskóla í körfu í morgun þá var ég líka eitthvað hálf druslulegur. En ég fór svo heim, hjólaði og tók æfingar og er bara þokkalegur. Ég fæ núna einn hvíldardag í viðbót (mánudagur) og svo tekur við síðasta alvöru vikan áður en fyrsta bikarmótið kemur.

Í því sambandi er ég búinn að vera að stilla af æfingarnar og vona að það komi ekkert upp á hjá mér svo ég nái að halda plani. Vikan fyrir mót verður mest rólegt endurance og kannski smá tabata (sprettir) en þetta mót er ekki í forgangi hjá mér og því verður aðal áherslan bara að vera úthvíldur.


Síðasta vika hjá mér.

Hvíldarvikan hjá mér byrjaði á mjög rólegu hjóli í klukkutíma og svo teygði ég vel og gerði upphífingar, armbeygjur og planka. Næst tók ég annan hvíldardag þar sem ég var þreyttur. Næst kom brekkuæfingin sem var kannski óþarflega erfið en ég ákvað svo bara að hvíla aftur á föstudaginn. Þar spilaði reyndar inn í að það var svo mikið um að vera hjá okkur börnunum.

Á laugardaginn hjóluðum við Harpa í 2 klst og það slapp alveg til þrátt fyrir kulda. Manni var orðið drullu kalt á puttunum en það var óskaplega fallegt og skárra en að vera inni. Í dag (sunnudag) tók ég sæmilega á því á hjólinu inni, teygði og gerði smá æfingar.

Næsta vika er eins og vikurnar hafa verið hjá mér síðan ég kom frá Tene. 

Næsta vika er svo í takt við það sem ég hef verið að gera síðan ég kom frá Tenerife. Blanda af endurance, VO2 max og threshold. Það gæti reyndar verið að ég muni henda út seinni threshold æfingunni fyrir spretti til að fá smá meiri snerpu í lappirnar fyrir fyrsta mót en ég ætla að sofa á því.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap