Vika í sól
Harpa á ferðinni við Gásir. Það lítur út fyrir að það verði einhver bið á frekara útihjóli. Sæmilegt veður á miðvikudaginn eftir viku samkvæmt Norsurunum. |
Hjá mér er hvíldarvika í fullum gangi eftir þrjár frekar krefjandi vikur. Ég slappaði alveg af á mánudaginn en í gær hjólaði ég klukkutíma inni mjög rólega og gerði svo æfingar og teygjur í 40 mínútur. Ég var ekki alveg upp á mitt besta en það er líka eðlilegt þegar líkaminn hættir að framleiða sín "náttúrulegu verkjalyf" og fer að endurbyggja vefi og lagfæra sig. Það er ekkert óvenjulegt að vera frekar druslulegur fyrstu dagana í hvíldarviku en svo kemur maður tvíefldur til baka ef allt er eins og það á að vera.
Framundan þessa vikuna eru frekar rólegar æfingar með smá sprettum, meiri teygjur og svo bara almenn afslöppun. Ég er ekki búinn að gera upp við mig hvort ég taki annan hvíldardag í dag eða hendi mér aðeins á hjólið núna á eftir. Spáin síðustu daga og fram í næstu viku hefur ekki verið góð en það rætist nú oft úr þessu þegar líður á daginn. Núna er hæg norðanátt, sól og 2°C. Svo sem ekki spennandi hjólaveður en sleppur alveg ef maður nennir að eyða tíma í að klæða sig vel. Það er nú kosturinn við að eiga hjól tilbúið á trainer að það tekur mann ekki nema 10 mínútur að hjóla af stað.
Börnin eru búin að vera hjá mér núna í næstum 3 vikur og fara ekki til mömmu sinnar fyrr en á mánudaginn næsta. Við höfum gert okkur ýmislegt til dundurs og mér finnst pabbahlutverkið bara verða skemmtilegra með tímanum. Einu sinni þoldi ég ekki börn á aldrinum 7-18 ára en það breytist greinilega þegar maður á börn sjálfur. Stundum er ég með samviskubit yfir að hafa ekki nægan tíma til að vera með þeim að brasa eitthvað en geri mitt besta. Harpa er að vinna alla helgina og lítið um æfingar þannig maður reynir kannski að skipuleggja eitthvað skemmtilegt.
Mataræðið hefur verið frekar sjoppulegt hjá mér upp á síðkastið og ég hef ekkert þokast niður í vikt. Er alltaf með einhver plön um að gera breytingar en stend svo aldrei við það. En ég er samt miklu öflugri á hjólinu núna miðað við sama tíma í fyrra og það er fyrir öllu. Mér finnst ég eiga auðveldara að halda í við þyngri hjólara á jafnsléttu og held hærri vöttum og meiri hraða. Í brekkum er ég svipaður og í fyrra þannig að í heildina hugsa ég að þetta komi bara betur út. Held kannski bara áfram að einbeita mér að því að éta allavega nóg.
Ummæli