Meira útihjól
Páskaeggjaát með frjálsri aðferð austanmegin við Víkurskarð. |
Ég var búinn að ætla að taka æfingu inni í dag en veðrið var mun skárra en ég hafði reiknað með. Ég ákvað því að fara austur fyrir Víkurskarð og taka threshold yfir skarðið. Það var smá vindsperringur og mér var aðeins kalt á puttunum en þetta slapp samt alveg. Ég hélt rétt rúmlega 250 vöttum upp að vestan í 19 mínútur og svo 265 í tæpar 14 mínútur upp hinumegin. Á leiðinni heim var mótvindur lengst af og þetta endaði því sem massíf æfing með TSS upp á 189. Garmin segir að ég þurfi að hvíla í 60 klst en mér líður vel og þarf að taka rólegar 3,5 klst á morgun. Það verður allt í góðu.
Vikan mín á Training Peaks. Gulu æfingarnar eru þær sem ég tók úti og fór hressilega fram úr því sem var á planinu. |
Það stefnir í að þetta verði býsna erfið vika hjá mér og þar munar mestu um þessar tvær æfingar sem ég hef verið úti. Þær voru lengri en til stóð og svo er ég að skila hærri vöttum úti eins og ég kom inn á í pistlinum á undan. Eftir báðar æfingarnar hefur Garmin leiðrétt hjá mér FTP-ið og hækkað það nokkuð. VO2 max-ið hjá mér, sem hrapaði í hitanum á Tene, hefur líka verið að rjúka upp og mér og er komið aftur í 60 (fór hæst í 62).
VO2 max úr Garmin Connect forritinu. |
Mér líður því eins og þetta sé allt á réttri leið og mér finnst ég í mun betra formi en ég var á sama tíma í fyrra. Það er ekki endilega það að ég sé að skila miklu meiri vöttum, heldur finnst mér ég geta tekið hressilega á því trekk í trekk án þess að fjara út og þreytast.
Ég ætla samt að vera vel meðvitaður um að skjóta ekki yfir markið og passa mig á að ganga ekki of langt. Það getur t.d. vel verið að ég hvíli bara á Páskadag þar sem ég verð búinn að fylla út tímana mína fyrir vikuna. Þegar ég hljóp mig í hel þá leið mér alltaf eins og ég væri ódauðlegur þangað til hnéin fóru í rugl. Það gerðist án aðvörunar og ég man meira að segja hvar ég var staddur þegar það gerðist. Ég hef verið í vandræðum með þau síðan þá.
En ég er í páskafríi og get legið með lappirnar upp í loft á milli æfinga og nært mig eins og kóngur. Það skipitir öllu.
Ummæli