|
Ég og Harpa á Hjalteyri í dag. |
Spáin leit ekki vel út fyrir helgina og maður var búinn að búast við að þurfa að hjóla inni. Það rættist þó úr þessu og við skelltum okkur út bæði í gær og í dag. Í gær skellti ég mér upp í fjall og tók 3x16 mínútna threshold æfingu og í dag hjóluðum við Harpa út á Hjalteyri. Það var ekki mikill lofthiti en sólin skein og það bærðist ekki hár á höfði.
Að öðru leiti var þessi helgi bara alveg dásamleg. Í gær var smá kaffiboð hjá Hörpu og í dag komu Hanna Kata, Davíð og stelpurnar í vöfflukaffi. Við kíktum líka öll út á körfuboltavöll og fórum í asna og stinger. Síðan erum við Brynleifur búnir að vera að spila NBA í Playstation, horfa á hápunkta úr úrslitakeppninni og svo horfðum við á Space Jam 2 með Lebron James. Við keyptum líka nýjan körfubolta og Brynleifur er búinn að hanga úti velli meira og minna. Hann er orðinn körfuboltasjúkur og við erum alveg að bonda í þessu. Frábært að finna eitthvað sem við getum gert saman.
Í gær fórum við á Glerártorg og Dagbjört keypti sér föt og dúkku fyrir afmælispeningana. Ég velti því fyrir mér hvort hún væri ekki að verða aðeins of gömul til að kaupa sér rándýra Baby Born dúkku en hún er búin að leika með hana stanslaust síðan. Patricija vinkona hennar á eins dúkku og frábært ef þær ná að halda í að leika sér eitthvað áfram.
|
Síðustu 4 vikur á Strava. |
Nú var ég að klára þriðju vikuna í röð sem átti að fylla 10 klst og komið að hvíldarviku (5:45 klst). Ég ætlaði reyndar að taka klukkutíma lengur í dag en var á bömmer yfir að skilja börnin eftir svona lengi og svo var einhver þreyta í mér.
|
Threshold æfing (3x16 mín) sem ég tók í fjallinu. |
Þegar ég set upp æfingar í Training Peaks fara þeir beint inn í hjólatölvuna og hún býður manni að taka æfinguna þegar maður kveikir. Þá er maður bundinn af því að vera kominn á góðan stað og út úr allri umferð þegar hvert sett byrjar þannig maður þurfi ekki að vera að hægja á sér eða vesenast. Mér hefur alltaf fundist þetta mjög vont og sjaldan notað þetta.
Það var því algert major breakthrough hjá mér að fatta að byrja að nota bara lap takkann á Garmin hjólatölvunni (ég er stundum svo slow). Núna legg ég bara alltaf æfinguna á minnið áður en ég legg af stað og ýti svo á "lap" þegar ég byrja hvert sett. Þegar maður hleður svo æfingunni inn á Strava og Trainingpeaks kemur æfingin vel upp sett og maður sér hvernig manni tókst að halda vöttum.
Eins og sést hérna fyrir ofan þá gæti þetta ekki hafa gengið mikið betur á threshold æfingunni sem ég tók í fjallinu.
Ummæli