Hressilegur sunnudagur
Langa endurance æfing vikunnar var 03:21 klst og 231 TSS. |
Ég átti langa endurance æfingu í dag og þar sem dagurinn var frekar þétt planaður þá vaknaði ég fyrir átta í morgun og fór að hafa mig til. Ég lagði af stað að heiman klukkan 08:30 og fór í gegnum Naustahverfi, Kjarnaskóg, Hrafnagil og hjólaði út að malbiksenda að vestan sem er nokkuð sunnan við Smámunasafnið, 35 km frá Akueyri. Síðan fór ég til baka, yfir brúnna hjá Hrafnagili og út að malbiskenda að austan líka. Þaðan fór ég svo til baka með smá viðbót til að ná í 100 km.
Það var frekar kalt og smá þokuslæðingur þegar ég lagði upp en svo fór heldur að birta til þó sólin hafi aldrei farið að skína. Mér var svolítið kalt á höndunum og á táslunum öðrumegin en það var s.s. ekkert að drepa mig. Það var lítil umferð og því notalegt að bruna um sveitirnar. Fuglalífið er að taka við sér, gæsir í túnum og orðið býsna vorlegt. Þó ég hafi verið snemma á ferðinni þá sá ég samt nokkra hjólara. Tók framúr einum gömlum á rafmagnshjóli sem náði mér svo í Laugalandsbrekkunni og við spjölluðum aðeins á síðustu metrunum þar upp.
Ég hjólaði í 3 klst og 20 míntútur og fór rétt rúma 100 km. Ég hélt 30 km/klst, meðalvött voru 187 (198 NP), hjartsláttur 131 og ég brenndi rúmlega 2500 kgcal. Mér leið vel allan tímann og hefði alveg getað haldið áfram á sama efforti í klukkutíma til tvo. Ég reyndi að éta á ferðinni og steig bara þrisvar af hjólinu í samanlagt kannski 2-3 mínútur.
Ég var í rauninni hissa þegar ég hlóð inn æfingunni og sá að ég hafði verið á svona háum vöttum og var eiginlega að skjóta yfir markið miðað við hvað ég hafði ætlað mér. En mér leið bara vel eftir þetta og vona að ég verði tilbúinn á æfingu á þriðjudaginn.
Ummæli