Fyrsti í útihjóli🥳

Á brúnni við Hrafnagil.

Nú er svo komið að ég gleymi oftar og oftar blogginu svo dögum skiptir. Ég veit ekki hvort það er gott eða slæmt? Sennilega bara hef ég nóg annað að gera. 

Nú er maður dottinn í páskafrí og ég og börnin áttum ljómandi fína ferð til Reykjavíkur um síðustu helgi. Dagbjört var reyndar veik svo við gerðum kannski ekki alveg jafn mikið og til stóð. Brynleifi gekk fínt í boltanum og það var mjög notarlegt að vera með Helgu og Geira eins og alltaf.

Við Harpa hentum okkur í fyrsta útihjólatúr ársins (á Íslandi) núna áðan. Við fórum Eyjafjararhringinn og svo tók ég threshold æfingu 2 x langleiðina upp í skíðahótel á eftir. Það var bölvaður vindur austanmegin í fyrðinum en lagaðist svo nokkuð þegar maður var kominn í bæinn. Þetta var hrikalega gott eins og alltaf. 

Tók FTP test í gær sem voru hálfgerð vonbrigði ef frá eru taldar síðustu 5 mínúturnar þar sem ég gróf dýpra en ég bjóst við að geta gert. Skrifa kannski meira um það síðar ef ég nenni...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap