Fimleikafjör

Dagbjört tók þátt í Akureyrarfjöri í fimleikum í gær. Þetta er kallað mót en ekki valið í sæti, allir fá verðlaun, allir eru sigurvegarar og gleðin er ósvikin. 

Dagbjört Lóa er nú á öðru árinu sínu í fimleikum og þetta hefur gengið ótrúlega vel. Eftir að hún byrjaði hefur hún aldrei beðið um að prufa einhverja aðra íþrótt, aldrei beðið um að hætta eða fá að sleppa við æfingar. Ég hafði heyrt misjafnar sögur af fimleikum fyrir börn en FIMAK gerir þetta ótrúlega vel. Þetta snýst ekki um árangur og afrek (ekki ennþá allavega), engin pressa varðandi búning eða annað. Þetta er fyrst og fremst leikur og gleði. Samt sem áður er regla, agi og farið fram á snyrtimennsku og kurteysi. Að lokum er þetta náttúrulega ótrúlega góðar æfingar fyrir líkamlegan styrk og liðleika. Nóg um það.

Nú er ég á kafi í laugardagsrútínunni með bolla af kaffi uppi í rúmi að hlusta á Reki með KK. Þegar ég vaknaði klukkan 07:30 í morgun var hitinn rétt um 3°C en nú sýnist mér hann vera kominn upp í 7°C og það ætti því ekki að vera því neitt til fyrirstöðu að kíkja út að hjóla fljótlega. Mig langar að fara út með Hörpu en ég á skipulagða æfingu og það passar því ekkert allt of vel. Kannski hjóla ég með henni einn Eyjafarðarhring og tek svo 2 ferðir upp í Hlíðarfjall eftir það. Á morgun stefni ég að 3-4 klst rólega.

Það var svo annasamur dagur í gær að ég hvíldi annan daginn í röð og færði æfingar aftur um einn dag. Ég hef hvort sem er ekki tíma í æfingu á mánudaginn. Eins og ég sagði í fyrri pósti þá er ég búinn að vera að dansa á limminu og hafði sennilega gott af því að taka 2 daga í hvíld í röð.

Seinnipartinn ætlum við að skoða það að kíkja með Þórði í pottana á Hjalteyri og svo er bara að lufsast eitthvað í kvöld.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap