Erfið vika ruglar þá næstu
Hin heilaga þrenning í Lindinni á laugardaginn. |
Ég lokaði vikunni í gær með liðkunaræfingum, upphífingum, magaæfingum og einhverju fleira. Ég var reyndar að velta því fyrir mér hvort ég ætti bara að vera alveg slakur en það var bara orðið óþarflega langt síðan ég gerði eitthvað annað en að hjóla. Við Harpa fórum svo í Mývatnssveit seinnipartinn í gær og borðuðum páskamat með mömmu og co.
Á laugardaginn tók ég 3 klukkustunda endurance æfingu úti og það var alveg ógeðslega næst. Ég reyndi að halda mér í kringum 150 vött og leið mjög vel allan tíman. Ég fór rétt tæpa 90 km og passaði mig að troða vel í mig af orku á leiðinni. Hápunkturinn var að stoppa í Lindinni og troða í sig pylsu, Snickers og Powerrade. Það er svo margfalt auðveldara að taka svona langar æfingar úti og ég krossa fingur að veðurfarið verði þokkalegt í vor.
Síðasta vika var feit og miðað við veðurspá næ ég varla að fylgja henni eftir. |
Í dag ætlaði ég svo að starta vikunni með 6x3 mín VO2 max æfingu en fann það í fyrsta settinu að ég var ekki að ná að halda afli til að klára þetta nægilega vel. Ég hætti því bara og tók rúmlega klukkutíma í viðbót á recovery. Síðasta vika situr greinilega í mér og ég þarf aðeins að rótera æfingum svo ég lendi ekki í ruglinu. Skipti út einni intensity æfingu fyrir endurance.
Ummæli